útlendingar.
Frú forseti. Mig langar aðeins að víkja orðum að bréfi sem Rauði krossinn á Íslandi sendi dómsmálaráðuneytinu 3. nóvember 2022 vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd sem ekki er hægt að flytja úr landi. Samkvæmt upplýsingum sem Rauði krossinn hafði á þeim tíma fengið frá stoðdeild ríkislögreglustjóra voru alls 64 einstaklingar sem fengið hafa lokasynjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd á Íslandi en ekki er unnt að flytja úr landi af einhverjum ástæðum. Rauði krossinn kannaði aðstæður þeirra umsækjenda með því að taka viðtöl við einstaklinga úr þessum hópi, alls 15 manns, og fékk þannig tækifæri til að átta sig á aðstæðum þeirra og þær eru slæmar. Þær eru vægast sagt slæmar.
Þetta er hópur sem lagt er til að stækka í frumvarpinu. Það er ekki sagt berum orðum, það er ekki eitt af markmiðum frumvarpsins en það er hins vegar ein af afleiðingum 8. gr. frumvarpsins að í þessum hópi mun fjölga til muna. Þetta fólk mun flest vera fast í þessu limbóástandi árum saman, jafnvel um ótiltekinn tíma, að eilífu, eða eins lengi og fólk getur búið við slíkar aðstæður. Oft er þetta fólk sem er að flýja ríki sem ekki er með stjórnmálasamband við Ísland. Dæmi um þennan hóp væru t.d. Írakar að flýja þá vargöld sem hefur ríkt árum og áratugum saman, koma til Íslands, fá synjun á umsókn um alþjóðlega vernd en Írak getur ekki tekið við þeim af því að Ísland er ekki með stjórnmálasamband við Írak.
Rauði krossinn leggur einnig í þessu minnisblaði sínu til dómsmálaráðherra áherslu á hvaða áhrif 6. gr. frumvarpsins muni hafa á þennan hóp, sú grein sem fjallar um niðurfellingu þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd 30 dögum eftir að endanleg ákvörðun hefur verið birt í máli þeirra, og segir að afleiðingar þessa ákvæðis yrðu gríðarlegar á stöðu og velferð og mannvirðingu umsækjenda um alþjóðlega vernd. Áhrifin væru augljós í ofanálag.
Rauði krossinn leggur fram ýmsar tillögur til úrbóta og hvetur almennt til þess að fallið verði frá þeim verstu breytingum sem hafi áhrif á þennan hóp og honum gert kleift að lifa mannsæmandi lífi frekar en að vera í fátæktarlimbói hér á Íslandi. En það sem kannski vekur mig til umhugsunar þegar ég blaða í gegnum þetta minnisblað er að ekki hafi verið brugðist við því í afgreiðslu allsherjar- og menntamálanefndar á málinu, vegna þess að þetta er minnisblað sem dómsmálaráðuneytið fær í hendurnar 3. nóvember. Þetta er skráð í skjalakerfi Alþingis 30. nóvember síðastliðinn, sem er hvað, er það ekki svona næstum tveimur vikum áður en málið er afgreitt úr allsherjar- og menntamálanefnd? Hér eru upplýsingar sem lágu fyrir áður en málið var afgreitt þar sem er augljóst, þarna er svo augljóslega hópur sem þarf einhvern veginn að ná utan um til þess að ekki sé verið að byggja upp eymd hjá 64 einstaklingum, sem mun fjölga verði þetta frumvarp að lögum. Það var ekki brugðist við þessu. Mér þykir þetta skrýtið vegna þess að þetta er þó sá hópur sem vísað hefur verið til varðandi mögulegar breytingar sem kunna að líta dagsins ljós á síðari stigum málsins af hálfu stjórnarliða. (Forseti hringir.) En enn og aftur erum við að tala um ábendingar sem komu á fyrri stigum og ekki var orðið við. (Forseti hringir.) Hvað hefur breyst? Hvers er að vænta?