útlendingar.
Frú forseti. Fyrst það til stendur að halda fundum hér eitthvað áfram, eitthvað fram eftir, þá langar mig að spyrja hvort eitthvað hafi heyrst frá hæstv. — (Gripið fram í.) mennta- og barnamálaráðherra, svo ég fari rétt með titilinn, vegna þess að við óskuðum þess að hann myndi taka þátt í þessari umræðu í ljósi þess að það er vegið dálítið að réttindum barna á flótta í frumvarpinu. Það er gengið ansi nærri réttindum barna til þess t.d. að fá sjálfstæða úrlausn mála sinna gagnvart stjórnvöldum, til þess t.d. að fá ríkisfang. Ætlar ráðherrann að mæta fyrst við höfum nú einhvern tíma fram undan? Hefur eitthvað heyrst frá honum?