153. löggjafarþing — 58. fundur,  1. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[22:22]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Frú forseti. Mér skilst að danska krónan sé u.þ.b. 20 kr. samkvæmt Google-internetleitinni — ég held að leitin heiti það, ég held að það sé ekki útlenskt orð, frú forseti. Ég er að fara yfir þá þjónustu sem umsækjendur um alþjóðlega vernd fá í Danmörku og þá þjónustu sem þeir fá þegar búið er að synja þeim. Ég rek þetta í tilefni ummæla í greinargerð með frumvarpinu þar sem fullyrt er að breytingarnar sem lagðar eru til í þessu frumvarpi séu í samræmi við löggjöf og framkvæmd annars staðar á Norðurlöndunum, sem er auðvitað hin argasta vitleysa. Það reynir þá á hugarreikningshæfileika mína ef ég ætla að reyna að þýða krónutölurnar yfir á íslensku.

Ég var komin að upptalningu á þeim greiðslum sem teljast vera fjárstuðningur við hælisleitanda í danska hæliskerfinu. Það er þessi svokallaða grunngreiðsla sem er 56,59 danskar krónur á dag, eða rúmlega 112 kr. Þetta fá þeir umsækjendur sem ekki eru í fríu fæði þar sem þeir búa. Séu einstaklingar í hjónabandi eða sambúð fá þeir aðeins minna, 44,81 eða 45 danskar krónur — ætli það séu ekki 900 kr. á dag? Ég tek reiknivél með mér hingað upp á eftir. Þessi greiðsla er innt af hendi fyrir fram annan hvern fimmtudag, á tveggja vikna fresti. Svo er viðbótargreiðsla fyrir þá sem eru 18 ára og eldri og hafa gert samkomulag um nám eða virkni og greiðslan hækkar þegar tekin hefur verið ákvörðun um að taka umsóknina til efnismeðferðar, sem er mjög áhugavert, ég verð nú að játa það. Þeir sem eru með börn á framfæri fá greiðslur vegna framfærslu þeirra. Full greiðsla kemur vegna tveggja barna en skerðist við þriðja og fjórða barn og ekki fást greiðslur vegna fleiri barna en fjögurra. Hvað gerum við þá? Greiðslur vegna framfærslu tveggja barna eru 66 danskar krónur — sem eru þá hvað? 1.320 kr. á dag — á meðan ekki liggur fyrir hvort umsóknin verður tekin til meðferðar. Ég held ég hætti þessum reikningskúnstum áður en ég verð mér alvarlega til skammar hér í beinni útsendingu. Um leið og fyrir liggur að umsóknin fái málsmeðferð þá hækkar greiðslan í tæpar 90 danskar krónur á dag fyrir fyrsta og annað barn. Greiðsla vegna þriðja og fjórða barns er 47,17 danskar krónur á dag.

Þá komum við að uppáhaldsþættinum mínum sem er heilbrigðisþjónustan. Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Danmörku eiga ekki sjálfstæðan rétt til þjónustu danska heilbrigðiskerfisins en Útlendingastofnun Danmerkur ber að sjá til þess að þeir fái heilbrigðisþjónustu vegna heilbrigðisvanda sem ekki getur beðið og einnig vegna sjúkdóma eða ástands sem veldur þrautum — það er strax betra en er hér á landi, eftir því sem mér heyrist. Þrautir virðast ekki vera þröskuldurinn hér heldur hvort þú lifir ástandið af eða þar um bil. Sjúkdómar eru taldir brýnir ef hætta er á því að sjúklingur hljóti varanleg mein ef ekki er gripið inn í gang sjúkdómsins eða ef líkur eru á að sjúkdómurinn verði viðvarandi — eða eins og stundum er sagt á útlensku krónískur; er það samt ekki bara íslenskt orð? Það held ég.

Ef um er að ræða þjónustu heimilislækna eða ákveðinna sérfræðinga, t.d. háls-, nef- og eyrnalækna, og ljósmæðra er yfirleitt ekki þörf á sérstökum ráðstöfunum en í öðrum tilfellum ber að sækja um fjárveitingu vegna heilbrigðisþjónustu við hælisleitanda til Útlendingastofnunar Danmerkur. Það er alls ekki ósvipað kerfi og er hér á landi ef fólk er í þjónustu á annað borð. Börn hælisleitenda fá sömu heilbrigðisþjónustu og börn sem búsett eru Danmörku. Eftir því sem ég kemst næst skilst mér að það sé það sama og gildi um umsækjendur um alþjóðlega vernd hér á landi. Svo fá þeir kennslu og virkniþjálfun. Raunar ber þeim að gera samkomulag við stjórnendur búsetuúrræðanna þar sem þeir dveljast um kennslu, virkniþjálfun og verkefni sem þeir taka að sér, sem er t.d. að taka til og þrífa og annað slíkt. Þeir geta einnig tekið að sér verkefni sem felast í minni háttar (Forseti hringir.) viðhaldi á húsum og innanstokksmunum og liðsinna starfsliðinu við létt skrifstofustörf — áhugavert. (Forseti hringir.) Greitt er fyrir þetta framlag samkvæmt taxta, samanber framanritað. Ein tillaga um þýðingu á orðinu „cliffhanger“ er snjóhengja — ég óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá.