útlendingar.
Frú forseti. Hér rétt áðan spurðum við hvort eitthvað væri að frétta af viðveru mennta- og barnamálaráðherra við þessa umræðu. Virðulegur forseti sagði að sér væri kunnugt um að ráðherra hefði borist beiðnin en ekki kunnugt um stöðuna. Mig langar nú að biðja forseta að kanna stöðu þess, vegna þess að spurningin sem við þurfum að fá svar við er: Megum við vænta þess að ráðherra sé á leið í salinn — bara svo við getum undirbúið góðar móttökur og getum átt hér almennilegar umræður, svo að við getum fagnað því þegar hann mætir. Ég heyri á lyklaborðstifinu fyrir aftan mig að forseti er að beina þessu í réttan farveg og boða það og ég mun tékka á stöðunni einhvern tímann á eftir þegar mig fer að lengja eftir elsku hjartans virðulegum ráðherranum.