153. löggjafarþing — 58. fundur,  1. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[23:10]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Okkur er tíðrætt hér um mannréttindi og mannréttindasáttmála og það hvernig þetta ákveðna frumvarp í brýtur í bága við slíka samninga. Þann 30. maí 1994 tóku gildi lög um mannréttindasáttmála Evrópu, sem hefur lagagildi á Íslandi, og hina ýmsu samningsviðauka og sá samningur byggir á hinni almennu mannréttindayfirlýsingu sem allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti hinn 10. desember. Til að geta rakið þetta almennilega og að við séum nú örugglega með þetta á hreinu þá langaði mig að fara fyrst í gegnum mannréttindayfirlýsinguna og síðan mannréttindasáttmálann og fjalla um þau atriði sem tengjast þessu máli. Mannréttindayfirlýsingin, sem eins og ég sagði áður var samþykkt þann 10. desember 1948, á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, þar á meðal af Íslandi, hefst á þessum orðum í 1. gr., með leyfi forseta:

„Allir eru bornir frjálsir og jafnir öðrum að virðingu og réttindum. Allir eru gæddir skynsemi og samvisku og ber að breyta bróðurlega hverjum við annan.“

Greinilega gamalt mál. Ég held áfram, frú forseti, með 2. gr., með leyfi forseta:

„Allir eiga kröfu á réttindum þeim og því frelsi sem fólgin eru í yfirlýsingu þessari og skal þar engan greinarmun gera vegna kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungu, trúar, stjórnmálaskoðana eða annarra skoðana, þjóðernis, uppruna, eigna, ætternis eða annarra aðstæðna. Eigi má heldur gera greinarmun á mönnum fyrir sakir stjórnskipulags lands þeirra eða landsvæðis, þjóðréttarstöðu þess eða lögsögu yfir því, hvort sem landið er sjálfstætt ríki, umráðasvæði, sjálfstjórnarlaust eða á annan hátt háð takmörkunum á fullveldi sínu.“

Í 3. gr. stendur, með leyfi forseta:

„Allir eiga rétt til lífs, frelsis og mannhelgi.“

Eins og hægt er að sjá er hér bara í fyrstu þremur greinunum verið að fjalla um það frelsi og þessi réttindi sem fólk á rétt á og að það megi ekki takmarka á neinn hátt miðað við hvert fólkið er. Ég sé að ég er strax byrjaður að vera lágur á tíma þannig að ég ætla að reyna að halda áfram með nokkrar greinar svo við komumst í gegnum þetta fyrir morgundaginn. En í 5. gr. segir, með leyfi forseta:

„Enginn skal sæta pyndingum, grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.“

Munum eftir þessu þegar við höldum áfram.

Í 6. gr. segir, með leyfi forseta:

„Allir eiga rétt á viðurkenningu að lögum, hvar í heimi sem er.“

Hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir svaraði einmitt hér fyrr í kvöld spurningu sem sumir hafa spurt sig: Gildir stjórnarskrá Íslands um útlendinga? Já, hún gerir það þegar fólk er í lögsögu landsins og það er einmitt eins og sagt er í 6. gr.

Ég sé að ég er búinn með tímann minn, frú forseti, og óska eftir því að komast aftur á mælendaskrá svo ég geti komist í gegnum hinar 20 greinarnar sem eftir eru í yfirlýsingunni.