útlendingar.
Frú forseti. Fyrir þá sem voru að kveikja á viðtækinu þá var ég í fyrri ræðu minni að tala um mannréttindi og taldi bestu leiðina til þess að fjalla aðeins um þá alþjóðlegu samninga sem Ísland hefur undirritað. Grunnurinn að t.d. mannréttindasáttmála Evrópu, og reyndar flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna, er svokölluð mannréttindayfirlýsing sem allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti hinn 10. desember 1948 og greiddi Ísland því atkvæði að þessi mannréttindayfirlýsing yrði samþykkt. Ég var búinn að fjalla um fyrstu sex greinarnar sem fjölluðu að mestu leyti um að þetta gilti fyrir alla, óháð því hvaðan þeir kæmu og hverja skoðanir þeirra væru o.s.frv. Mig langar að fara hér næst í 7. gr., með leyfi forseta, og þar stendur:
„Allir skulu jafnir fyrir lögunum og eiga rétt á jafnri vernd þeirra, án nokkurrar mismununar. Ber öllum jafn réttur til verndar gegn hvers konar mismunun, sem í bága brýtur við yfirlýsingu þessa, svo og gagnvart hvers konar áeggjan til slíkrar mismununar.“
Það er athyglisvert að hér er verið að segja nákvæmlega það sama í rauninni og er í mannréttindakafla stjórnarskrárinnar þar sem er einmitt talað um að allir skuli jafnir fyrir lögum. En höldum áfram, 8. gr., með leyfi forseta:
„Hver sá sem sætir meðferð, sem brýtur í bága við grundvallarréttindi þau sem tryggð eru í stjórnarskrá eða lögum, skal eiga rétt á raunhæfu úrræði fyrir lögbærum dómstólum landsins.“
Já, ef einhver sætir meðferð sem viðkomandi telur að brjóti í bága við grundvallarréttindi úr stjórnarskrá eða lögum skal viðkomandi eiga rétt á raunhæfu úrræði fyrir lögbærum dómstóli. Höfum þetta í huga þegar við hugsum um það þegar hælisleitendur sem hafa sótt mál til dómstóla eru einfaldlega sendir úr landi áður en þeir fá tækifæri til að láta taka mál sitt fyrir.
Í 9. gr. segir síðan, með leyfi forseta: „Enginn skal að geðþótta handtekinn, sviptur frelsi eða gerður útlægur.“ — Það er spurning hvernig þetta er túlkað þegar kemur að þeim sem sækja um hæli.
10. gr. er sennilega síðasta greinin sem ég kemst í gegnum hérna. Ég ætla að sleppa 11., 12. og 13. gr. því að þær eru minna tengdar því máli sem við erum að fjalla um núna og ég vil ekki vera sakaður um að vera að tefja með því að fjalla um mál sem ekki tengjast þessu frumvarpi. En í 10. gr. segir, með leyfi forseta:
„Allir skulu jafnir fyrir dómstólum og njóta réttlátrar, opinberrar málsmeðferðar fyrir óháðum og óhlutdrægum dómi, þegar skorið er úr um réttindi þeirra og skyldur eða sök sem þeir eru bornir um refsivert brot.“
Þarna er enn og aftur verið að benda á það að allir skuli vera jafnir og allir skuli fá réttláta opinbera málsmeðferð fyrir dómi til að skera úr um réttindi þeirra.
Frú forseti. Ég kemst ekki lengra að þessu sinni og óska því eftir að verða bætt á mælendaskrá.