útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar andsvar. Ég tel eðlilegt og rétt að hv. allsherjar- og menntamálanefnd skoði þetta sérstaklega. Þetta er kannski eitt af þeim atriðum sem orkar hvað mest tvímælis í frumvarpinu sem fyrir liggur og mig langar að nefna það sem hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir nefndi hér þegar hún var að fjalla um hvernig þetta er framkvæmt í Danmörku, sem við viljum ekkert endilega nota sem fyrirmynd, þegar talað er um að þeir vilji ekki að fólk fari undir brúna. Ég held að við ættum líka að huga að því: Viljum við setja fólk undir brúna? Viljum við setja fólk á götuna sem á hvergi heima? Við erum með fólk í þeirri aðstöðu þrátt fyrir að Útlendingastofnun telji Grikkland öruggt land eða Spán og Ítalíu. Þessi hópur er bara í þeirri stöðu að geta enga björg sér veitt í þessum löndum, þekkir engan og talar ekki málið. Þessi hópur á mjög erfitt uppdráttar þegar hann er sendur til þessara landa. Ég tel vissulega rétt að hv. nefnd taki á þessu og skoði þetta sérstaklega.
Ég er ekki löglærður maður, og verð það væntanlega ekki úr þessu, en ég tel að lög séu umgjörð utan um eitthvað sem við viljum. Þau eru bara einhver kassi sem við viljum starfa í og inn í þennan kassa vil ég skrifa einhverja mannúð. Þegar ég er að velta fyrir mér þessum hlutum þá vil ég því sjá að inn í þá lagaumgjörð sé skrifuð einhver mannúð og eitthvert réttlæti.