útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Frú forseti. Ég þakka áréttinguna. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég held nefnilega að það sé verið að skapa fleiri vandamál en verið er að leysa með þessu frumvarpi. Og þar er ég ekki að reyna að fella neinar pólitískar keilur, ég er einfaldlega að tala hreint út. Þarna er í raun verið að skapa heimildir fyrir íslensk stjórnvöld til að synja fleirum þótt ekkert bendi til annars en að það fólk sé hingað komið til að taka þátt í samfélaginu.
Mig langar til að benda á eitt sem annar fyrrverandi hv. þingmaður hefur verið óþreytandi við að benda á í umræðunni úti í samfélaginu, þegar talað er um hvað við getum tekið á móti mörgum. Forsendan fyrir því að við getum ekki tekið á móti nema X mörgum er sú að fólk sé einhvers konar byrði á samfélaginu, að samfélögin séu ekki bara byggð upp af fólki. Til að geta notið þeirrar samfélagslegu þjónustu sem hér er í boði þarf X marga einstaklinga í kringum sig til að greiða skatta og annað til þess að halda kerfinu uppi. Það er fólkið sem heldur kerfunum uppi. Það er ekki bara að nota kerfin. (Forseti hringir.) Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann telji þetta vera einhvern eðlilegan útgangspunkt í umræðunni,(Forseti hringir.) að við séum einhvern veginn að taka á móti fólki sem ætlar ekki að vera fullir þátttakendur í samfélaginu.