útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Frú forseti. Ég held áfram ræðu minni. Það er eitt ákvæði sem hefur verið einna mest gagnrýnt í þessu frumvarpi. Það tekur tíma að fara yfir það þó að það séu önnur ákvæði sem ég tel að þarfnist meiri útskýringar þannig að ég ætla að reyna að halda þessu í styttra lagi vegna þess að ég held að, hvað eigum við að segja, röksemdirnar fyrir því hvað þetta er kjánalegt ákvæði hafi komið nokkuð skýrt fram. En það eru önnur ákvæði í þessu frumvarpi sem ég held að þarfnist kannski raunveruleikatengingar sem ekki hefur komið fram í dagsljósið enn þá. Ég ætla samt ekki að láta það eiga sig, ég ætla að fara örstutt yfir það og ég ætla að lesa úr greinargerð með þessu ákvæði í frumvarpinu, með leyfi forseta:
„Ólíkt löggjöfinni hér á landi er það almennt innbyggt í regluverk og verndarkerfi annars staðar á Norðurlöndum að þjónustustig minnkar, oft í þrepum, og fellur jafnvel alveg niður þegar útlendingur fær synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og fresturinn til sjálfviljugrar heimfarar er liðinn. Skiptir þar einna helst máli hversu samvinnufúsir einstaklingarnir eru við undirbúning og framkvæmd flutnings. Geta þannig einstaklingar sem sýna ekki samstarfsvilja við framkvæmd ákvörðunarinnar í vissum tilvikum átt hættu á að missa rétt til þjónustu fram að brottför, svo sem búsetu, heilbrigðisþjónustu og fjárhagsaðstoð.“
Ég ætla að láta staðar numið þarna. Þarna eru einfaldlega rangfærslur. Hvergi, ekki í Danmörku, ekki í Noregi og ekki í Svíþjóð, fellur þjónusta, búseta, heilbrigðisþjónusta og fjárhagsaðstoð með öllu niður á neinum tímapunkti. Það er heldur ekki svo að það skipti mestu máli. Það er rétt að þjónustan minnkar gjarnan í þrepum og eykst í öðrum þrepum. Það eru ýmsir þættir sem hafa t.d. áhrif á þann vasapening sem fólk fær. Það er ekkert sem hefur áhrif á það hvaða heilbrigðisþjónustu þú færð. Þau fá alltaf frá upphafi — líkt og er í þeirri svakalegu þjónustu sem umsækjendur um alþjóðlega vernd fá hér á landi, í raun bara neyðarþjónustu, það er frá fyrsta degi umsóknarferlisins. Það er ekki þannig að fólk sem er í umsóknarferli fái fulla þjónustu þangað til það er komið með lokaniðurstöðu í máli sínu. Nei, það er ekki þannig, ekki hér á landi og ekki annars staðar. Þar þarf engu að breyta. Heilbrigðisþjónusta er aldrei felld niður. Það er hins vegar það sem stendur til með þessu frumvarpi sem við erum að reyna að samþykkja hér. Það sem hefur áhrif, sérstaklega á vasapeninga einstaklinga, á öðrum Norðurlöndum, bæði til hækkunar og lækkunar, er vilji fólks til þess t.d. að vera virkt. Það eru virkniúrræði sem fólki bjóðast og jafnvel námskeið um menninguna sem geta hækkað vasapeninga fólks. Það er svo sem ekki hátt tímakaup sem fólk fær fyrir að taka þátt í svona verkefnum í þessum búðum sem það býr í en engu að síður einhvers konar hvati. Þar er hvati til góðra verka sem ég held að við séum öll sammála um að sé bara mjög góður hlutur; læra tungumál, læra að vera virk og annað, í stað þess að hafa fólk lokað inni á einhverjum herbergjum og láta það bíða í áraraðir, eins og við gerum, án þess að hafa nokkuð fyrir stafni.
Hitt er það að samstarfsvilji við framkvæmd ákvörðunar er ekki það sem ræður úrslitum um það hvort fólk fær fjárhagsaðstoð eða húsnæði eða ekki, heldur vilji til að fara. Það er sannarlega rétt, það hefur áhrif. Í öllum þessum löndum er í boði aðstoð við að fara heim, en bara í ákveðnum tilvikum, það er bara til ákveðinna ríkja. Það stendur ekki öllum til boða og ekki að sama marki. Oft er það bara flugmiði, það er kallað „aðstoð við heimför“. Aðstoð við heimför getur verið það að ríkið greiði flugmiða fólks heim. Það er aldeilis aðstoð, sannarlega aðstoð ef fólk á í vandræðum með að kaupa flugmiða en sjaldnast er það ástæðan fyrir því að fólk fer ekki sjálft.
Það sem ég er að reyna að skýra hérna er að það er alveg ljóst að markmiðið með þessu ákvæði frumvarpsins er ekki að samræma löggjöf okkar og framkvæmd við Norðurlöndin. Þessu ákvæði er, eins og ég hef nefnt hér áður, beint gegn ákveðnum hópi fólks sem hefur verið hér um lengri tíma. Því er ætlað að knýja það til að fara. Við vitum að sérstaklega með þann hóp er ekkert sem bendir til þess að þau muni fara. Þeim líður mjög illa hérna því að það er mjög illa farið með þau. Það er ekkert sem bendir til að þau muni fara. Það sem mun gerast er að þau verða í mun verri stöðu, líkamlega, andlega, félagslega, að öllu leyti. Það er ekki bara vandamál fyrir fólkið sjálft, það er líka vandamál fyrir okkar samfélag. (Forseti hringir.) Við viljum ekki hafa fólk í örvæntingu sem er búið að vera í langvarandi aðstæðum sem ógna andlegri og líkamlegri heilsu þess, við viljum ekki hafa það á götum úti til þess að ástandið versni enn frekar.