útlendingar.
Herra forseti. Aðeins áfram um ríkisfangslausu börnin sem fæðast með foreldra sem búa hér í umborinni dvöl, eins og það heitir, fólk sem hefur fengið endanlega synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi en treystir sér ekki til að fara aftur til þess lands þar sem það er mögulega að flýja mansal eða hættu á ofsóknum. Stjórnvöld hafa engin verkfæri til þess að þvinga þau í brottför, eins og t.d. varðandi Írakana sem eru í þessari stöðu hér á landi — Ísland og Írak eru bara ekki með gagnkvæman samning um þessi mál — eða fólkið frá Nígeríu sem er í þessari stöðu. Nígería neitar að taka á móti fólki sem ekki vill koma til Nígeríu. Það er ekki hægt að senda fólk þvingað til þess lands.
Þegar fólk er í þessu limbóástandi og eignast börn hér á landi — og taktu eftir, forseti, þetta er ekki hýpótetískt, þetta er ekki eitthvað sem gæti gerst heldur eitthvað sem gerist. Einhver börn viðmælenda Rauða krossins í þessari skýrslu um fólk í umborinni dvöl hafa fæðst hér á landi og eru því ríkisfangslaus. En Rauða krossinum virðist sem einhver áhöld séu um að skráning þeirra beri það með sér þannig að eitthvað eru stjórnvöld að klikka á skrásetningunni hér eins og víða annars staðar í þessum málaflokki. Þetta er mjög slæm staða fyrir börnin að fæðast í en þetta er líka svo á skjön við það sem stjórnvöld segjast hafa verið að gera á síðustu árum vegna þess að á síðustu, hvað erum við að tala um, sex árum hafa verið stigin mörg skref á Íslandi í þá átt að laga löggjöf að ákvæðum alþjóðasamninga, annars vegar samnings Sameinuðu þjóðanna um stöðu ríkisfangslausra og hins vegar samningsins frá 1961 um að draga úr fjölda ríkisfangslausra. Þetta var gert vegna þess að Ísland vildi loksins stíga það skref að gerast aðili að þessum samningum. Það náðist loksins árið 2021. En á sama tíma er lagt til í þessu frumvarpi að sníða útlendingalögin þannig að það fjölgi í hópi ríkisfangslausra barna sem fæðast hér á landi. Ákvæði frumvarpsins munu hafa í för með sér, verði þau að lögum, að fólki sem fær endanlega synjun en ekki er hægt að flytja úr landi mun fjölga.
Hér er rétt að rifja upp það sem Rauði krossinn bendir á í því fylgibréfi sem hann sendi með skýrslu sinni, sendi ráðuneytinu það 3. nóvember síðastliðinn og Alþingi og allsherjar- og menntamálanefnd 30. nóvember, að UNICEF og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafa sent út ákall þar sem ríki Evrópu voru hvött til að fara í brýnar aðgerðir til að enda ríkisfangsleysi í Evrópu, brýnar aðgerðir til að enda ríkisfangsleysi en ekki, eins og hér er lagt upp með, að breyta lögum þannig að Ísland auki ríkisfangsleysi. Ástæðan er sú að það er hætta á því að ríkisfangslaust barn verði fyrir ofsóknum og þá eru dæmi þess að yfirvöld í upprunalandi barna sem fæðst hafa í Evrópu vilji ekki taka við þeim þegar brottvísa á þeim til upprunalandsins ef þau eru ekki skráð ríkisborgarar þess lands. Þannig að íslensk stjórnvöld eða hæstv. dómsmálaráðherra og stjórnarliðarnir sem standa að baki þessu frumvarpi eru að stilla upp hér kerfi þar sem ekki einasta erum við með fólk sem er innlyksa í landinu heldur erum við að búa svo um hnútana að börn þeirra verði enn (Forseti hringir.) meira innlyksa, þau verði ríkisfangslaus og þar með geti þau mögulega aldrei nokkurn tímann farið aftur til heimalands foreldra sinna.