153. löggjafarþing — 59. fundur,  2. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[21:12]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Hugsið ykkur aðeins hvað þetta er undarlegt: Þingið biður um viðveru ráðherra til að svara mjög augljósum spurningum um verksvið þeirra af því að meiri hluti þingsins vill ekki senda málið inn til nefndar aftur. Ráðherra segir: Já, ég heyri hvað þið viljið, heyri hvað þið eruð að biðja um, og svarar svo ekki einu sinni, segir ekki einu sinni bara nei. Er það rosalega heiðarleg framkoma? Er það rosalega eðlileg framkoma? Og sama varðandi fundarstjórn forseta, þar sem búið er að ákveða núna lengdan þingfund, að bara segja: Já, þegar mér hentar ætla ég að klára þingfund, bara svona einhvern tímann. Í gær var það eitthvað um tvöleytið. Hversu erfitt er að segja að lengdur þingfundur verði til kl. 2 eða 3? Af hverju ákveður forseti lengdan þingfund og geymir það bara í hausnum á sér hversu lengi þingfundur á að vera? Ég skil þetta ekki.