útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (um fundarstjórn):
Frú forseti. Ég tek undir það sem hv. þingmenn hafa sagt hér og vil einmitt árétta það sem hefur komið fram, að forgangsröðunin á dagskránni hér er ekki í okkar höndum. Það erum ekki við sem völdum að ræða þetta mál, svo það komi fram og því sé haldið til haga. Líkt og ég sagði í ræðu minni í morgun, þegar við ræddum tillögu okkar um að fresta þessu máli, þá er það þannig að þegar kemur að forgangsröðun mála til afgreiðslu í þinginu verður að telja fyrirætlanir forseta um að halda þessu máli á dagskrá óheppilega, svo ekki sé meira sagt. Fjölmörg þjóðfélagslega mikilvæg mál bíða aðkomu stjórnvalda. Mikil óvissa ríkir um efnahagsmál, verðbólga er í sögulegu hámarki og staða heimilanna erfið. Réttara væri að beina atorku þingsins í að leysa þessi þjóðþrifamál frekar en að gera atlögu að réttindum flóttafólks að forgangsmáli sem óvíst er hvort standist mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar yfir höfuð. Og, líkt og kollegar mínir hafa sagt hér, þar sem málið er afar vanbúið væri réttast að vísa því aftur til allsherjar- og menntamálanefndar svo hægt sé að vinna það betur, freista þess að svara þeim spurningum sem enn er ósvarað og eiga betra samtal við umsagnaraðila. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)