útlendingar.
Frú forseti. Já, ég tek að sjálfsögðu undir með hv. þingmönnum sem hafa komið hér upp og krafist þess að umræðu um þetta mál verði frestað og það verði sent aftur í nefnd. Það hefur, held ég, komið fram í næstum hverri einustu ræðu þingmanna, ekki bara Pírata heldur annarra þingmanna hér, undanfarna daga að þetta frumvarp stenst ekki stjórnarskrá og alþjóðlega sáttmála sem Ísland er aðili að. Það að ætla að halda þinginu í gíslingu er eitthvað sem hæstv. forseti og dómsmálaráðherra ættu að hugsa sig tvisvar um að gera, vegna þess að það er nákvæmlega það sem er í gangi: Þeir tveir eru að halda þinginu í gíslingu með því að krefjast þess að mál sem ekki er tilbúið, sem brýtur gegn stjórnarskrá, sé sett í forgang fram yfir það að ræða þjóðþrifamál hér, svo ekki séu nefndar ótrúlegar embættisfærslur ráðherra sem hafa komið á daginn undanfarna daga. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)