útlendingar.
Virðulegur forseti. Það er nú ekkert bara út í bláinn sem við segjum að við höfum áhyggjur af því að þetta mál standist ekki stjórnarskrá. Við tökum undir með Mannréttindastofnun Háskóla Íslands sem telur afar óheppilegt að hvorki sé vísað til ákvæða stjórnarskrár né mannréttindasáttmála Evrópu. Efni frumvarpsins varði með augljósum hætti mannréttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.d. þegar kemur að brottfalli þjónustu, 6. gr. frumvarpsins, sem varðar við 68. gr. stjórnarskrárinnar sem felur í sér bann við pyndingum, og sérákvæðinu um börn, sem varðar 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar um að börnum skuli tryggð sú vernd í lögum sem velferð þeirra krefst. Þetta er eitthvað sem hæstv. mennta- og barnamálaráðherra ætti að vera hér í þessum sal að svara fyrir en er ekki einhverra hluta vegna. Framkvæmd ákvarðana varða 8. gr. og 68. gr. stjórnarskrárinnar og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og ýmis útfærsluatriði á málsmeðferð kunna að varða 70. gr. stjórnarskrárinnar hvað varðar rétt til aðgangs að dómstólum, réttláta málsmeðferð, (Forseti hringir.) rétt til raunhæfs úrræðis til að leita réttar síns. Það er ótækt að senda hér mál til atkvæðagreiðslu, virðulegi forseti, þar sem jafn miklar efasemdir eru uppi um hvort standist stjórnarskrá.