útlendingar.
Forseti. Mig langar til að spyrja forseta, af því að hann ákvað að lengja þingfund bæði í gær og í dag og veit það einn manna hvenær þingfundur klárast, af hverju hann einn manna veit hvenær þingfundur klárast. Til hvers? Ég get alveg skilið að það verði sagt: Við ætlum að hafa þingfund þangað til þetta mál klárast. En við gerum okkur vel grein fyrir því, held ég báðir hérna, að þetta mál mun ekki klárast í nótt. Það er alveg ómögulegt. Þannig að miðað við það: Hvenær ætlar forseti að klára þingfund í kvöld eða nótt? Ef forseti vill ekki svara því eða segja það upphátt, af hverju ekki?