153. löggjafarþing — 59. fundur,  2. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[23:35]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ekki aðeins er það heimilt samkvæmt þingskapalögum að vísa máli til nefndar í miðri umræðu, miðri 2. umr., heldur eru fordæmi þess efnis. Og af hvaða tilefni hefur það verið gert? Jú, það hefur verið gert þegar ábendingar hafa borist um það að frumvarp sem verið er að ræða í þinginu geti mögulega stangast á við stjórnarskrá. Þá hefur málinu verið kippt inn í nefnd til þess að kanna það til hlítar. En svo ber til að í þessu máli var ekki bara það verkefni okkar vanrækt að kanna til hlítar hvort frumvarpið standist stjórnarskrá, heldur var kröfu um að það yrði gert beinlínis hafnað. En ég vek athygli á því, líkt og hefur verið bent á hér, ekki síst af hálfu hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar, að okkur ber skylda, samkvæmt stjórnarskrá, samkvæmt þeim drengskapareið sem við sverjum þegar við tökum sæti hér á þingi, til að vinna í samræmi við stjórnarskrá og virða stjórnarskrána. Þetta er ekki eitthvert grín, þetta er ekki einhver píratapopúlismi. Þetta er stjórnarskráin.