útlendingar.
Virðulegi forseti. Eitt af þeim atriðum sem hér eru undir og mér hefur orðið tíðrætt um er 68. gr. stjórnarskrárinnar um bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hér eru uppi mjög sterkar efasemdir um að ákveðið ákvæði frumvarpsins standist þá grein. Ég verð að segja að mér finnst sorglegur þessi einbeitti vilji stjórnarliða til þess að hunsa allar ábendingar um að þetta frumvarp standist ekki stjórnarskrá. Ég hef nú oft tekið slaginn fyrir stjórnarskrárvörðum réttindum í þessum þingsal og sjaldan verið jafn órótt og nú og sjaldan upplifað jafn mikið sinnuleysi gagnvart stjórnarskrárvörðum réttindum og nú. Skyldi það vera vegna þess að hópurinn sem hér er undir mun eiga hvað allra erfiðast með, af öllum þeim hópum sem lagasetning stjórnvalda hefur beinst gegn, að leita réttar síns vegna þess að við verðum búin að vísa þeim úr landi og þar með taka af þeim getuna til að leita réttar síns fyrir dómstólum? (Forseti hringir.) Skyldi það vera þess vegna sem þetta sinnuleysi er svona mikið, að þessi hópur hreinlega getur ekki varið sig?