Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 59. fundur,  3. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[00:29]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Fyrir þá sem eru að koma að viðtækjunum þá er ég að fjalla um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Í síðustu ræðu var ég að fjalla um 20. gr. Ég ætla að hoppa yfir 21. gr. því að hún hefur lítið að gera með börn á flótta og ég vil ekki að vera sakaður um málþóf með því að lesa óþarfa upplýsingar hér. En það eru tvær málsgreinar í 22. gr. og þær fjalla um börn á flótta. Það er því mikilvægt að hlusta vel því að settar eru sérstakar reglur og sérstakrar kröfur á ríki þegar kemur að réttarstöðu barns sem flóttamanns. En við skulum byrja á því að lesa textann áður en ég fer síðan í aðeins efnislega umræðu um hann.

1. mgr. hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Aðildarríki skulu gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leitar eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið er flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum og starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það er í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eiga og kveðið er á um í samningi þessum og öðrum alþjóðlegum löggerningum á sviði mannréttinda- eða mannúðarmála sem ríki þau er um ræðir eiga aðild að.“

Já, frú forseti. Hér skiptir engu máli hvort barn kemur í fylgd foreldra eða ekki. Hér er líka sérstaklega tekið fram að barn sem leitar eftir réttarstöðu sem flóttamaður, bæði sem kvótaflóttamaður og sem það sem við köllum umsækjanda um alþjóðlega vernd — að við eigum að tryggja að viðeigandi vernd og mannúðleg aðstoð sé veitt til að nýta þau réttindi sem við eiga, bæði í þessum samningi og öðrum alþjóðasamningum og mannréttindasamningum.

Hér er alveg skýrt tekið fram að sérstaklega skuli passa upp á börn sem eru á flótta og að það þurfi að gera það, ekki bara á lagalegan hátt heldur líka á mannúðlegan hátt. Ef við skoðum aftur aðeins framar í barnasáttmálanum og lesum 1. mgr. 3. gr. þá segir þar:

„Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opinbera eða einkaaðila, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafarstofnanir gera ráðstafanir sem varða börn.“

Þessi málsgrein segir að það er ekki nóg með að veita eigi barninu viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð heldur skuli ávallt gera það með það fyrir augum að það sé barninu fyrir bestu.

Virðulegi forseti. Ég sé að ég næ ekki að komast í gegnum 2. mgr. 22. gr. þannig að ég óska eftir því að komast aftur á mælendaskrá hér á eftir.