útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég tel það vera sameiginlega skyldu okkar allra þingmanna að tryggja að löggjöf sem fer hér í gegn, að frumvörp sem fara hér í gegn, standist stjórnarskrá. Af þeim sökum vil ég heyra álit forseta á því að það hafi ekki verið skoðað í ráðuneytinu að frumvarpið standist stjórnarskrá og sömuleiðis hefur því verið hafnað af hálfu meiri hlutans að fram fari sjálfstætt mat á því hvort frumvarpið standist stjórnarskrá.
Virðulegi forseti. Er það ekki á ábyrgð okkar allra alþingismanna — þegar jafn skýrar og alvarlegar ábendingar hafa komið fram frá Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og fleiri mannréttindasamtökum; Mannréttindastofnunin er kannski sérhæfðust í þessum málaflokki af umsagnaraðilum — að fullvissa okkur um og tryggja að frumvörp sem fara hér í gegn standist stjórnarskrá og þarf ekki að bæta úr þessu áður en 2. umr. klárast?