útlendingar.
Virðulegur forseti. Spurning mín var mögulega meira almenns eðlis þó að ég hafi vissulega tengt hana við útlendingamálin. Spurningin snýr að því hvort það sé ekki sameiginleg ábyrgð okkar allra alþingismanna að tryggja að við séum ekki að afgreiða hér lög sem stangast á við stjórnarskrá. Ég tel það mjög mikilvægt að við álítum það okkar sameiginlegu ábyrgð vegna þess að ekki höfum við, eins og svo mörg önnur ríki, jafn greiðan aðgang að dómstólum til að fá úr því skorið hvort lög standist stjórnarskrá þegar vafi er uppi, án þess að einstaklingar fari þá leið eftir að lögin eru sett o.s.frv. Við höfum ekki Lögréttu sem við Píratar höfum endurtekið lagt til að verði sett á fót til að meta hvort lög standist stjórnarskrá. Þegar staðan er þessi er það þá a.m.k. ekki lágmarksábyrgð okkar að tryggja að það liggi skýrt fyrir hvort lög standist stjórnarskrá eða ekki?