Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 59. fundur,  3. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[00:52]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill geta þess að það er eðlilegt, þegar hv. þingmenn telja ástæðu til að halda mjög margar ræður um það mál sem hér er til umræðu, að fundir dragist. Það er rétt, sem hv. þingmaður bendir á, að þingsköp heimila ekki mjög langar ræður en þegar þingmenn hafa talað 60 til 70 sinnum um sama mál er eðlilegt að það dofni nokkuð yfir áhuga annarra þingmanna.