útlendingar.
Forseti. Ég var að fara yfir framfærsluviðmið umsækjenda um alþjóðlega vernd sem finna má í skýrslu Rauða krossins um aðstæður einstaklinga sem fengið hafa lokasynjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd en ekki er hægt að flytja úr landi af einhverjum ástæðum. Ég var að fara yfir þau örfáu tilvik þar sem flóttafólk fær hærri framfærslu en þetta hámark, 28.000 kr. á mánuði. Það eru ekki mörg tilvik þar sem það á við en mér finnst samt sem áður rétt að taka það fram hvenær það á við. Ég var búin að fara yfir það að þetta eigi við þegar beðið er eftir því að ákvörðun stjórnvalda um að einstaklingur yfirgefi landið komi til framkvæmda. Þetta getur einnig átt við í ákveðnum tilvikum þrátt fyrir að ákvörðun stjórnvalda um að einstaklingur eigi að yfirgefa landið liggi ekki fyrir, t.d. þegar fangi hefur fengið reynslulausn. Þetta getur sömuleiðis átt við þegar einstaklingur getur ekki yfirgefið landið vegna meðferðar sakamáls, svo sem ef í gildi er úrskurður um farbann eða ef honum er skylt að tilkynna sig til lögreglustjóra eða dveljast á tilteknum stað samkvæmt lögum um útlendinga, þegar umsókn einstaklings um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða alþjóðlegrar verndar hefur verið synjað og ákvörðun stjórnvalda um að hann skuli yfirgefa landið getur ekki komið til framkvæmda og þegar ófyrirsjáanleg áföll í lífi einstaklings hafa átt sér stað á meðan dvöl hans stóð og/eða barn eða börn eru með í för og fólk getur ekki ferðast til heimaríkis af eigin rammleik.
Í skýrslunni kemur fram, með leyfi forseta:
„Ljóst er að veruleg verðbólga og verðlagshækkun hefur átt sér stað hér á landi frá setningu reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 þegar fjárhæð fæðispeninga og framfærslufjár var ákvörðuð, auk þess sem sú framfærsla sem umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á samkvæmt reglugerðinni er langt undir þeirri fjárhagsaðstoð sem sveitarfélög veita framangreindum hópum.
Með vísan til framangreinds telur Rauði krossinn á Íslandi rétt að fjárhæð fæðispeninga og framfærslufjár til umsækjenda um alþjóðlega vernd verði endurskoðuð og hækkuð í takt þá verðbólgu og verðlagshækkanir sem orðið hafa hér á landi frá árinu 2017.“
Í skýrslunni kemur fram að þau hafi tekið viðtöl við 15 umsækjendur um alþjóðlega vernd sem fengið hafi lokasynjun í máli sínu og ekki sé hægt að flytja úr landi. Hér stendur, með leyfi forseta:
„Viðmælendur, sem komu hingað til lands á árunum 2017–2022, eru á aldrinum 25–59 ára og eru ýmist frá Kúrdistan í Írak eða Nígeríu og höfðu hlotið efnismeðferð hér á landi. Íröksku viðmælendurnir eiga það allir sameiginlegt að geta ekki farið sjálfviljugir úr landi af ótta við ofsóknir og ofbeldi í heimalandinu. Jafnframt geta íslensk yfirvöld ekki flutt þá úr landi vegna þess að íslensk stjórnvöld hafa ekki gert samning við íröksk yfirvöld um endurviðtöku á þegnum þeirra. Flestar nígerísku kvennanna sem rætt var við kváðust vera fórnarlömb mansals. Greindu þær frá því að þær hafi verið tældar frá heimalandi sínu til Ítalíu þar sem þær hafi svo verið seldar í kynlífsþrælkun. Þær hafi svo flúið frá Ítalíu til Íslands en sumar þeirra hafi leitað til Stígamóta vegna upplifana sinna. Nígerísku karlmennirnir kváðust hafa flúið ofsóknir í heimalandi sínu þar sem þeir hafi m.a. verið pyndaðir. Þeir hafi farið til Ítalíu og þaðan komið til Íslands vegna slæmra aðstæðna. Líkt og fram kom hér að framan skortir alls 60 einstaklinga sem fengið hafa lokasynjun á umsókn sinni skilríki en af þeim er fjölmennasti hópurinn með útrunnin vegabréf frá Nígeríu. Af þeim sökum sé ekki hægt að flytja þá úr landi.
Viðmælendur áttu allir það sameiginlegt að hafa þá djúpu löngun að lifa mannsæmandi lífi sem þátttakendur í samfélaginu. Hins vegar hefur verið erfitt fyrir einstaklinga í þessari stöðu að taka þátt í íslensku samfélagi, auk þess sem þeir upplifa mikla skerðingu á ferðafrelsi sínu. Þau sem ekki hafa bráðabirgðadvalar- og -atvinnuleyfi kváðust ekki fá nægilega framfærslu frá íslenskum stjórnvöldum til að framfæra sér og fjölskyldu sinni en þau finni fyrir mikilli löngun til að vinna og leggja sitt af mörkum til samfélagsins og vera sjálfum sér og sínum nóg. Verulega erfitt sé að búa með öðrum umsækjendum sem ítrekað séu að fá jákvæðar úrlausnir í sínum málum á meðan þau sitji eftir í tómarúmi og án úrlausna. Þau einangrist verulega og upplifi sig ekki sem hluta af samfélaginu. Telur Rauði krossinn ljóst að þau vandamál sem viðmælendur lýstu komi sérstaklega niður á börnum þeirra sem dvalið hafa hér í lengri tíma og aðlagast íslensku samfélagi. Þá eigi þau erfitt með að taka þátt í samfélagi jafnaldra sinna, svo sem félags- og tómstundarviðburðum, vegna skorts á fjármagni og öðrum stuðningi.“
Áfram segir:
„Einhver börn viðmælenda hafa fæðst hér á landi og eru því ríkisfangslaus þrátt fyrir að skráning þeirra hér á landi beri það ekki með sér. […] Börn sem fæðast á flótta eigi í sérstakri hættu á að verða ríkisfangslaus. Þó flest börn erfi ríkisfang foreldra sinna eru mörg börn sem erfa það ekki.“
Mér finnst mikilvægt að fjalla um þennan viðkvæma hóp í annarri ræðu. Ég óska því eftir að verða sett aftur á mælendaskrá.