útlendingar.
Virðulegi forseti. Klukkan er korter yfir tvö og hér erum við enn að ræða frumvarp í skjóli nætur. Allt í góðu með það, við höfum bara margt að segja og meiri hlutinn vill greinilega að við tökum samtal um þetta frumvarp. Ég geri samt sem áður athugasemd við það að við séum ein í þingsal. Það er t.d. enginn sem situr í hv. allsherjar- og menntamálanefnd, sem er að fá málið aftur til sín á milli 2. og 3. umr., hér í þingsal og enginn í húsi. Og meira að segja þegar við tölum um þetta á daginn, þegar það er bjart úti, þá tekur enginn þátt í þessum umræðum og það er varla hlustað á okkur. Mér þykir bara mjög nauðsynlegt að við séum viss um að við náum að koma punktunum okkar, ábendingum og áhyggjum á framfæri til þess að hægt sé að taka efnislega umfjöllun af hálfu hv. nefndarmanna í allsherjar- og menntamálanefnd um það sem við höfum verið að tala um í dag af því að þetta er grafalvarlegt mál.