útlendingar.
Herra forseti. Hér fyrr í kvöld byrjaði ég aðeins að fara yfir sögu þeirra breytinga sem voru gerðar á útlendingalögunum frá því að þau tóku gildi fyrir sex árum síðan. Eins og ég rakti hafa farið fram 18 breytingar á lögunum, þar af sex sem ég myndi segja að væru beinar efnisbreytingar á inntaki útlendingalaga á meðan aðrar eru afleiðingar og oft bara svona textalagfæringar sem fylgja breytingum á öðrum lögum. Dæmi um það væri t.d. lög nr. 79/2019, sem snerist um brottfall kjararáðs úr íslenska lagasafninu. Sá bandormur teygði anga sína inn í lög um útlendinga án þess að það leiddi endilega til beinna breytinga á réttarstöðu fólks sem heyrir undir lög um útlendinga.
Fyrsta breytingin á lögum um útlendinga, eða fyrsta breytingin sem var gerð var áður en lögin tóku gildi, var samþykkt hér í sal rétt fyrir jól 2016, þá viku áður en kom að gildistöku þessa nýja lagabálks. Þar var sett inn bráðabirgðaákvæði þess efnis að kæra frestaði ekki réttaráhrifum ákvörðunar um brottvísun hjá því sem er kallað bersýnilega tilhæfulausar umsóknir og örugg upprunaríki. Það var ekki full sátt um þetta. Þvert á það sem maður heyrir stundum frá fólki varðandi að það sé mikilvægt að halda í heiðri þverpólitísku nálguninni sem leiddi til þess að þessi heildarendurskoðun laga náði fram að ganga árið 2015/2016 þá hafa breytingar þannig frá fyrsta degi ekki verið jafn þverpólitískar og hin upphaflegu lög. Þarna var stigið það sem ég myndi segja að væri skref aftur á bak. Fyrsta breytingin sem sett var í lögin snerist um að þrengja að rétti umsækjanda um alþjóðlega vernd til að leita réttar síns fyrir dómstólum eða kærunefnd eða fá eitthvert fullnaðarsvar í sínum málum. Þetta komst í gegn, við skulum segja kannski stórátakalaust vegna þess að um var að ræða bráðabirgðaákvæði og meira að segja þannig að gildistíminn var styttur í meðförum þingsins frá því sem var upphaflega þegar hv. þm. Þórunn Egilsdóttir tók að sér að flytja þetta. Þannig að þetta bráðabirgðaákvæði átti bara að gilda til 1. apríl 2017. En fyrsta verk nýs dómsmálaráðherra eftir áramótin 2017 var að leggja fram nýtt frumvarp sem síðan var samþykkt sem lög nr. 17/2017 þar sem þetta bráðabirgðaákvæði, varðandi það að kæra fresti ekki réttaráhrifum, var fest varanlega í sessi í lögunum. Þá voru nú töluvert meiri deilur og heitar umræður um málið.
Ég ætlaði að fara aðeins ítarlegar ofan í það sem um var að ræða í því frumvarpi sem varð að lögum nr. 17/2017 en sé að þessi stutta upprifjun, hjá þá forseta sem mig minnir að hafi ekki verið á vakt þegar ég byrjaði að rekja þessa þingsögu hér, hefur étið upp tímann þannig að ég kannski kem bara að lögum 17/2017 hér síðar.