Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 59. fundur,  3. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[03:40]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég finn mig knúna enn og aftur til að auglýsa eftir viðveru ráðherra sem kallað hefur verið eftir endurtekið, allt frá 1. umr. raunar, þegar kemur að hæstv. fyrrverandi umhverfisráðherra og núverandi félags- og vinnumarkaðsráðherra, en hluti af þessu frumvarpi snertir beint hans málefnasvið og ætti hluti af þessu frumvarpi réttar heima í frumvarpi frá honum. Aðilar úr ráðuneyti hans hafa komið á fund allsherjar- og menntamálanefndar með athugasemdir við frumvarpið og það er rétt að ráðherra komi hingað og geri grein fyrir þeim athugasemdum og taki þátt í þessari umræðu og hvernig hún snýr að honum og málefnaflokki hans.

Auðvitað verð ég enn og aftur að auglýsa eftir hæstv. mennta- og barnamálaráðherra Ásmundi Einari Daðasyni sem hefur ekki látið sjá sig hér í þessari umræðu heldur þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um. Það er ekki ásættanlegt, virðulegi forseti, að hann hunsi hér skýrar beiðnir þingmanna um að taka þátt í þessari umræðu og um það hvernig þetta frumvarp snertir við og brýtur á réttindum barna.