Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 59. fundur,  3. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[04:15]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þessi tækni hérna, að rölta af og til inn í þingsal og rölta fram hjá púltinu og svo út aftur þarna hinum megin er kennd við Vigdísi Hauksdóttur, sem var formaður fjárlaganefndar fyrir nokkrum kjörtímabilum síðan. Hún var víst alltaf að vinna á skrifstofu sinni hérna hinum megin við en vildi láta vita, láta myndavélina vita að hún væri einhvers staðar á svæðinu, labbaði þá í gegnum þingsalinn og út hinum megin án þess að taka á nokkurn þátt í umræðunni, til hvers sem það var þá eiginlega gert. Þetta var svona til að segja: Hæ, ég er hérna, bara að láta vita. Mjög spes sýniþörf einhvern veginn.

En ég var að fara yfir umsagnir umsagnaraðila og var að klára umsögn Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands. Þar segir að lokum að grundvallarforsenda undanþáguheimildar frumvarpsins til að þjónusta falli ekki niður. Þetta er sem sagt þessi 30 daga reglan þar sem segir: Að lokum fellur niður þjónusta nema það sé endalaust langur listi undanþáguatriða sem kemur í veg fyrir að fólk missi þjónustu. En svo er líka annar langur listi yfir atriði varðandi það ef viðkomandi er ekki samvinnuþýður og geti þá misst þjónustu. Þetta stangast á og er dálítið flókið. En alla vega. Grundvallarforsenda undanþáguheimildarinnar er að útlendingur hafi „sannanlega sýnt samstarfsvilja við að fara af landi brott.“ Því er vert að nefna að í fyrrgreindu máli gegn Hollandi, máli 90/2013, tók félagsmálanefnd berum orðum fram að ekki teldist heimilt að gera skilyrði neyðaraðstoðar að útlendingar sýndi samstarfsvilja í sinni eigin brottvísun.

Við erum í alvörunni, meiri hluti nefndarinnar og dómsmálaráðherra, með þessu frumvarpi að stilla hlutum þannig upp að slegið verði á hendurnar á okkur í öllum atriðum þessa frumvarps, bara bannað, bannað, aftur og aftur.

Prestar innflytjenda og flóttafólks sendu líka inn umsögn, skýra og skorinorða sem byrjar einmitt á brottfalli þjónustu:

„Ef breytingin nær fram að ganga þá þýðir það að grundvallarþjónusta er varðar heilsu, öryggi og velferð verður tekin frá viðkomandi einstaklingum sem þurfa þá að leita skjóls á götunni“ — hvernig svo sem það er hægt, að leita skjóls á götunni, það er vandamál sem við höfum verið að glíma við hérna almennt og virðist vera markmið þessa frumvarps að auka á það vandamál, sem er ekki mjög jákvætt — „hafi þau ekki yfirgefið landið sjálfviljug.“

Þá þurfa þau að leita skjóls á götunni, hafa engan annan samastað. Að mati presta innflytjenda og flóttafólks hlýtur slík framkvæmd af hálfu ríkisins að stangast á við grundvallarstefnu íslensku þjóðarinnar sem byggir á virðingu fyrir mannréttindum og skyldu okkar til að standa vörð um velferð allra sem dvelja á landinu.

Það er verið að búa til heimilislaust fólk með þessu ákvæði. Við erum með heimilislausa Íslendinga sem eru í verulega slæmri stöðu og það þarf verulega að bæta í þeim málaflokki. Þegar þarna bætist síðan enn fleira fólk við verður enn erfiðara að gera eitthvað í þessum málaflokki, það verður enn stærra vandamál. Þetta er ekki skilvirkni, nema það sé orðið rosalega skilvirkt allt kerfið í kringum Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála, hún er rosalega fljót að afgreiða öll mál og henda öllum á götuna. Það er rosalega skilvirkt, er það ekki? Ekki fyrir heimilislausa. Það er ekkert rosalega skilvirkt fyrir þá. Það gleymist að horfa á allt kerfið hérna, alla anga kerfisins, alla anga þessara breytinga sem teygja sig yfir í dómstóla og teygja sig yfir í Mannréttindadómstól, teygja sig yfir í heimilisleysi. Það er heildarpakkinn hérna sem skiptir máli og skilvirkni heildarpakkans. En það er ekki verið að hugsa um það.

Forseti. Vinsamlegast bættu mér aftur á mælendaskrá.