153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

drengskaparheit.

[15:03]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd mælir einróma með staðfestingu kosningar Hermanns Jónssonar Bragasonar og telst það samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.

Hermann Jónsson Bragason, Ingveldur Anna Sigurðardóttir og Halldóra K. Hauksdóttir hafa ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Hermann Jónsson Bragason, 6. þm. Norðvest., Ingveldur Anna Sigurðardóttir, 5. þm. Reykv. n., og Halldóra K. Hauksdóttir, 9. þm. Norðaust., undirrituðu drengskaparheit að stjórnarskránni.