153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

greiðsluþátttaka sjúklinga.

[15:30]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Hvað ætli hæstv. heilbrigðisráðherra kalli heilbrigðiskerfi þar sem sérfræðingar í einkarekstri fá greitt úr ríkissjóði fyrir þjónustuna en fá auk þess greitt beint frá sjúklingum talsverðar upphæðir fyrir hverja komu? Fólk getur ekki treyst á að greiðsluþátttökukerfið okkar virki sem þó er ákveðið með lögum og er ætlað að verja fólk fyrir frekari greiðslum. Þau sem þurfa á heilbrigðisþjónustunni að halda fá rukkanir með þeim skýringum einum að samningar sérgreinalækna við ríkið hafi verið lausir í fjögur ár. Ég get nefnt fjölmörg dæmi um þetta til skýringar. Eitt er um rannsókn þar sem einstaklingur hefði átt að greiða mánaðarlegt hámark samkvæmt greiðsluþátttökukerfinu, 31.159 kr., en er rukkaður um 50.150 kr., annað um einstakling sem átti samkvæmt greiðsluþátttökukerfinu að greiða 5.192 kr. fyrir komuna, eftir að hafa áður greitt mánaðarlegt hámark, en var rukkaður um 11.442 kr. Tilvikum fjölgar þar sem fólk frestar því að fara til læknis vegna þess að það hefur ekki efni á því. Slíkt ófremdarástand er að mínu mati og okkar í Samfylkingunni algerlega óþolandi. Við tökum hvorki afstöðu með ríkinu né sérgreinalæknum í deilunni en við tökum hins vegar skýra afstöðu með fólkinu sem ber kostnaðinn af samningsleysinu. Aukakostnaður er mismikill eftir læknum en sjúklingarnir hafa ekkert val. Lögin um sjúkratryggingar og greiðsluþátttöku hafa það að markmiði að heilbrigðisþjónustan hér á landi sé aðgengileg öllum, óháð efnahag. Ekkert í lögunum kemur í veg fyrir að farið sé á svig við það markmið líkt og nú er gert. Hvað getur hæstv. heilbrigðisráðherra sagt okkur um þessa afleitu stöðu? Er ráðherrann úrræðalaus?