Katla jarðvangur.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og hún fór ágætlega yfir Kötlu jarðvang en það er sjálfseignarstofnun og sveitarfélögin eru ábyrg fyrir starfsemi jarðvangsins. Í skýrslu um þjóðgarða og friðlýst svæði sem var gerð undir forystu Árna Finnssonar, sem mér finnst vera góður grunnur til þess að ræða þessi mál, kemur fram að jarðvangar eru ekki í friðlýsingarflokki samkvæmt náttúruverndarlögum og heyra þar af leiðandi ekki undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Það skapar óvissu um hlutverk jarðvanganna með tilliti til laga um náttúruvernd. En það breytir því ekki að ég mun í þessu eins og öðru ræða við fulltrúa sveitarfélaganna um þessi mál. Ég hef átt mjög gott samstarf við sveitarfélögin almennt um landið og ekki síst á Suðurlandi og ég held að það séu miklir möguleikar þegar kemur að samstarfi okkar á milli, þegar kemur að íslenskri náttúru, skulum við bara segja. Hins vegar er það alltaf svo að við verðum bara að sætta okkur við það að til að ná sem bestum árangri er allt í lagi að menn þurfi að taka samtal um þjóðgarða og friðlýst svæði og önnur þau svæði sem við lítum alveg sérstaklega til. Það sem er kannski að frétta í þessu máli er að það er fyrirhugaður fundur með forystumönnum sveitarfélaga á Suðurlandi þar sem við munum ræða þetta og annað. Það hefur farið fram mikil umræða og mikil umræða mun fara fram um það hvert við viljum stefna í þessum málum.