Katla jarðvangur.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir fyrirspurnina og innlegg hans í þessi mál. Þetta mál er enn eitt dæmi um það að við þurfum að líta á þessi mál í stóra samhenginu. Ein ástæðan fyrir því að ég tilkynnti að við værum að fara í breytingar á stofnanafyrirkomulagi er sú að við sjáum oft að hlutir falla á milli skips og bryggju og um tvíverknað verður að ræða. Það er svolítið skrýtið í okkar fámenna þjóðfélagi og við ættum ekki að hafa hlutina þannig. Ég vonast til þess að það sem við erum að fara í, sem ég vona að ég eigi gott samstarf um við þingið, muni skila okkur áfram hvað þetta varðar.
Það er auðvitað bara ánægjulegt að fá að hitta forystumenn sveitarfélaganna og ræða þessi mál og önnur. Þegar kemur að viðfangsefnum míns ráðuneytis eru þau nú að (Forseti hringir.) stærstum hluta úti á landi og engir þekkja þau mál betur en heimamenn á hverjum stað fyrir sig.