Katla jarðvangur.
Virðulegi forseti. Það er eitt að ráðherrar svari almennt ekki í óundirbúnum fyrirspurnum og jafnvel bara undirbúnum fyrirspurnum. Við erum orðin alvön því. En þegar þeir fara í það að svara og fara fram með ósannindi þá verð ég að nýta þetta tækifæri og bera af mér sakir því að hér rétt áðan undir óundirbúnum fyrirspurnum, þá sagði hæstv. forsætisráðherra að ég hefði skipað sem ráðherra á sínum tíma starfshóp með hagsmunaaðilum sem Ríkisendurskoðun gerir athugasemd við þannig að við eigum ekki að nálgast þetta nema með auðmýkt, sagði hæstv. forsætisráðherra. Ég tek undir það. Við eigum að nálgast þetta verkefni af auðmýkt og af metnaði fyrir samfélagið okkar allt. Þetta var einfaldlega rangt. Það var ráðherra Framsóknarflokksins í lok nóvember sem skipaði þennan starfshóp. Starfshópurinn skilaði í minni tíð en ráðherrar Framsóknarflokksins skipaði þennan starfshóp. Það var ekki ég eins og hæstv. forsætisráðherra sagði hér og ætlaði að reyna að taka einhvern svona hælkrók. Ég vil bara undirstrika að þótt forsætisráðherra telji svo vera að þá erum við ekki öll Framsóknarmenn.