153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:10]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Frú forseti. Það staðfestist alltaf betur og betur það sem mig grunar í tengslum við þetta mál sem við erum að ræða hér, að þeir einstaklingar sem bera ábyrgð á því og bera ábyrgð á því að það mun fara í gegnum þetta þing, sem allt bendir til að það muni gera þrátt fyrir andmæli allra helstu mannréttindasamtaka á Íslandi, að ástæðan sé sú að fólk veit ekki hvað það er að samþykkja.

Ég ætla fá að lesa upp úr ræðu frá hæstv. forsætisráðherra frá árinu 2017 þegar hún gegndi öðru embætti, með leyfi forseta:

„Frú forseti. Þegar framkvæmd laga sem varðar fólk í sérstaklega viðkvæmri stöðu, börn, hefur það í för með sér að réttlætiskennd jafn margra er misboðið, þá er ástæða til að hlusta. Þegar UNICEF og Rauði krossinn biðja okkur að hlusta er ástæða til að hlusta, hlusta og velta því fyrir sér hvort við séum að framfylgja lögum sem eiga að byggjast á mannúð með þeim hætti sem við eigum að gera þannig að þau uppfylli skyldur barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem við höfum undirgengist. Það er nefnilega ástæða til að hlusta og velta því fyrir sér. Það er niðurstaðan sem fulltrúar sex flokka af sjö hér á Alþingi komust að, að það væri ástæða til að hlusta. Ég velti því fyrir mér hvort fulltrúar þess flokks sem ekki kýs að styðja þessa breytingu ættu ekki að hlusta. Ég segi já við þessari breytingu.“

Hérna er ég að vísa í ræðu hæstv. forsætisráðherra þegar hér var verið að ræða breytingar á lögum sem áttu að laga framkvæmd núgildandi laga. Það frumvarp sem stendur til að samþykkja á þinginu sem við erum að ræða í dag er til að lögfesta framkvæmd núgildandi laga, ólögmæta framkvæmd núgildandi laga. Tilgangur þessara laga er ekki að straumlínulaga kerfið. Hann er ekki sá að tryggja það að hér gildi eitthvert regluverk, líkt og hæstv. forsætisráðherra sagði í ræðu sinni áðan. Hér gildir regluverk sem samið var í þverpólitískri sátt árið 2016. Tilgangur þess frumvarps sem við erum að ræða og ástæðan fyrir því að því hefur verið hafnað fjórum sinnum hér á þingi er sú að það snýst ekki um að gera neitt gagn. Það snýst um að lögfesta framkvæmd sem er ómannúðleg og ólögleg. Í stað þess að skjóta lagastoð undir þá framkvæmd væri nær að þessi ríkisstjórn myndi tryggja það að stjórnvöld fari samkvæmt lögum og bæti það sem þarf til að tryggja raunverulega skilvirkni, straumlínulaga kerfið ef þess þarf og annað slíkt. En það er ekki það sem er að gerast hér.

Það sem hryggir mig er að af orðum hæstv. forsætisráðherra að dæma, sem hún segir hér og ég las áðan, er alveg ljóst að hún gerir sér enga grein fyrir því hvert efni þessa frumvarps er sem er að fara í gegnum þingið. Er það raunverulega svo að Vinstrihreyfingin – grænt framboð ætlar að leyfa því að viðgangast?

Ég ætla að láta vera að vitna enn einu sinni í orð hv. þingmanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Silfrinu um daginn, Jódísar Skúladóttur, þar sem hún viðrar þá skoðun sína að það sé bara í besta lagi að vísa börnum á götuna, á ruslahaugana í Grikklandi þar sem þau eru ekki einu sinni með húsaskjól til þess að vernda þau fyrir barnaræningjum eða einhverju þaðan af verra, vegna þess að við getum ekki tekið á móti öllum. Er þetta stefna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, hæstv. forsætisráðherra?

Þetta er 93. ræðan mín um þetta mál þar sem ég er að reyna að útskýra hvað er verið að gera hérna og það er alveg ljóst að það er ekki verið að hlusta. Ég veit ekki hvað ég á að gera til að fá fólk til þess að hlusta, til að fá hv. þingmenn, sem samþykkja þetta frumvarp, til þess að hlusta, til að gera sér grein fyrir því hvað er raunverulega verið að gera hérna.

Árið 1938 fór Friðarvinafélagið þess á leit við stjórnvöld að íslensk stjórnvöld tækju á móti börnum gyðinga sem voru hætt komin á meginlandi Evrópu — árið 1938. Við getum ímyndað okkur hvað varð um þau síðar þar sem börn komu aldrei hingað til lands. Vitið þið hvers vegna? Vegna þess að sitjandi ríkisstjórn taldi kröfu þeirra um að þessi börn kæmu hingað vera pólitíska pílu, þetta væri einhvers konar popúlismi vinstri manna til að reyna að koma höggi á ríkisstjórnina. Þetta sló mig þegar ég heyrði þessa frásögn vegna þess að það er nákvæmlega það sem er að gerast hérna í dag. Við í þingflokki Pírata höfum lagt okkur hart fram, höfum gert allt sem í okkar valdi stendur til að reyna að gera sitjandi ríkisstjórn og meiri hlutanum hér á þingi grein fyrir því að þið eruð að brjóta mannréttindi, þið eruð að brjóta á flóttafólki, þið eruð að senda flóttafólki þau skilaboð að þau séu ekki velkomin, að við álítum þau blóðsugur svindlara og svikara og að þau eigi að vera einhvers staðar annars staðar. Það eru skilaboðin sem er verið að senda með þessu frumvarpi. Og við erum sökuð um að vera með pólitískar pílur, líkt og Katrín Thoroddsen árið 1938.