153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:15]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Virðulegi forseti. Mín ræða er eiginlega bara framhald af ræðunni hjá hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur. Mig langar að halda áfram með það sem ég tók fyrir hér í fundarstjórn forseta varðandi það að ekki sé verið að hlusta á okkur, að ekki sé verið að gefa nein svör.

Þetta var skemmtilegur samanburður hjá hv. þingmanni varðandi atvik sem gerðist árið 1938. Þetta er bara nákvæmlega það sem er að gerast núna. Ég er sammála hv. þingmanni. Allar mótbárur okkar, allar athugasemdir okkar sem við erum að koma með uppi í pontu Alþingis undir þessum dagskrárlið í 2. umr. eru álitnar vera einhvers konar andstöðupopúlismi eða frekja eða þrjóska í Pírötum og orðið málþóf notað, þegar þetta eru ekki bara athugasemdir sem koma frá þingmönnum Pírata heldur líka athugasemdir sem koma frá umsagnaraðilum á borð við Rauða krossinn og Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, og ekki í fyrsta skipti, ekki í annað skipti, ekki í þriðja skipti og ekki fjórða skipti heldur. Þetta frumvarp hefur verið lagt fram fimm sinnum og það eru einhver grundvallarákvæði sem hæstv. dómsmálaráðherra bara gersamlega neitar að víkja frá þegar kemur að framlagningu þessa frumvarps þrátt fyrir að umsagnaraðilar hafi lýst yfir andstöðu sinni gagnvart ákveðnum ákvæðum. Þetta eru umsagnaraðilar á borð við Barnaheill, landlækni, Hafnarfjarðarbæ, Íslandsdeild Amnesty International, Kvenréttindafélag Íslands, Þroskahjálp, Læknafélagið, Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, presta innflytjenda og flóttafólks, Rauða krossinn á Íslandi. Og listinn er ekki tæmandi.

Virðulegi forseti. Ég veit ekki hver hæstv. dómsmálaráðherra heldur að hann sé að hunsa þessar umsagnir og þessar ábendingar sem hafa komið frá sérfræðingum í þessum málaflokki og frá lögfróðum aðilum. En ég held að það sé tilefni til að taka mark á þessum ábendingum og athugasemdum. Og alveg eins og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson tók fram í óundirbúnum fyrirspurnum sínum við hæstv. forsætisráðherra þá erum við kannski ekki endilega í stakk búin til þess að kljást við þær afleiðingar sem beiting þessara heimilda og lagaákvæða mun hafa í för með sér, því að ég er ekkert rosalega bjartsýn á að þetta muni standast alþjóðlegar skuldbindingar sem Ísland hefur skuldbundið sig til að framfylgja. Ég er ekki mjög bjartsýn á að þetta muni standast mannréttindakafla stjórnarskrárinnar, alveg eins og hefur komið fram í umsögnum umsagnaraðila. Það er gjörsamlega fáránlegt að loka eyrunum fyrir þessum athugasemdum sem eru að koma fram, bara út af því að þetta kemur frá stjórnarandstöðunni og þetta kemur frá mannréttindastofnunum. Frá hverjum þurfa þessar ábendingar að koma þannig að ríkisstjórnin taki mark á þeim? (BLG: Heyr, heyr.) Lögreglunni? Ég veit það ekki. (BLG: Landhelgisgæslunni?) Eða Landhelgisgæslunni, nákvæmlega. Ég skil ekki. Hverjum fleiri? Samherja? Nei, ég veit það ekki. Í alvörunni talað, hvað meira þarf ríkisstjórnin til þess að geta hlustað á þessar mótbárur sem hér hafa komið fram í pontu? Þetta er gjörsamlega fáránlegt. Það er talað um að það sé frekja í þingmönnum Pírata að vilja ræða málið hérna í þaula þegar þetta er frekja hjá ríkisstjórninni að taka ekki mark á þessum athugasemdum sem eru að koma fram. Þetta eru raunverulegar áhyggjur sem við höfum. Þetta varðar lýðræðið á Íslandi og þetta varðar réttarríkið. Það að ríkisstjórnin sé viljandi að lögfesta ákvæði, viljandi að þröngva lögum í gegn þvert á áhyggjur umsagnaraðila og annarra þingmanna hér, bara til að klára þetta mál af því að þetta er eitthvað á „to do“-listanum, afsakið slettuna, forseti, þetta er á (BLG: Aðgerðalistanum.) — aðgerðalista ríkisstjórnarinnar af því að þau hafa ekki náð að koma þessu máli í gegn á síðustu fimm löggjafarþingum þegar það hefur verið lagt fram; núna er sko tíminn sem við munum lögfesta þessi ákvæði þvert á áhyggjur og athugasemdir umsagnaraðila sem vita miklu meira en við. Þetta er gjörsamlega fáránlegt. Þetta eru léleg skítleg vinnubrögð. Ég skil þetta ekki.

Ef meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar myndi nenna að kynna sér málið, alveg eins og þingmenn Pírata og stjórnarandstöðunnar eru búnir að gera, og skoða hvaðan þessar athugasemdir og ábendingar koma, skoða af hverju við höfum þessar áhyggjur, þá held ég í alvörunni talað að þau myndu skipta um skoðun. Þau myndu t.d. falla frá því að lögfesta 2. gr. eða 6. gr., 8. gr., því að þetta eru alvarleg lagaákvæði. Þetta skerðir réttindi fólks sem hingað leitar. Þetta er á skjön við 65. gr. stjórnarskrárinnar og önnur ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Þetta er grafalvarlegt mál, forseti, og ég mun halda áfram að koma hingað upp í pontu og ítreka mikilvægi þess að það verði tekið mark á þessum athugasemdum sem hafa borist.