153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:20]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. Breytingarnar sem boðaðar eru í útlendingafrumvarpinu sem við erum að ræða munu minnka skilvirkni kerfisins með því að búa til flóknar sérreglur og undantekningar á ágætu regluverki sem samið var af þverpólitískri nefnd og sátt hefur ríkt um. Kostnaður við málsmeðferð eykst fyrir vikið. Ekkert bendir til þess að breytingarnar muni fækka umsóknum hér á landi eða með öðrum hætti leysa þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Breytingarnar munu fjölga einstaklingum sem eru hér árum saman án þess að fá niðurstöðu í máli sínu. Verið er að eyðileggja ákvæði sem sett voru sérstaklega til að leysa það vandamál. Kostnaður við uppihald og þjónustu eykst svo fyrir vikið. Breytingarnar skerða réttindi fólks á flótta, líka fólks sem er í raunverulegri neyð. Móttaka flóttafólks frá Úkraínu hefur sýnt að ekki þarf að gera neinar lagabreytingar til að auka skilvirkni kerfisins til muna. Vandinn við kerfið er ekki löggjöfin. Vandinn er framkvæmdin sem er mannfjandsamleg og skapar miklar tafir og tregðu í kerfinu. Tilgangur þessa frumvarps er að lögfesta ólögmæta framkvæmd stjórnvalda síðustu ára. Áskorunin sem við eigum að vera að ausa peningum í, frekar en að ausa þeim í þetta frumvarp, eru innviðirnir okkar og tækifæri fyrir nýtt fólk til aðlögunar í samfélaginu. Við eigum að fjárfesta í mannauðnum. Í stuttu máli munu breytingarnar, samkvæmt frumvarpinu, verða þessar:

Þær munu afnema rétt fólks til að fá mál sitt endurupptekið ef ný gögn eða upplýsingar koma fram í málinu. Rétturinn er mjög þröngur nú þegar og er í almennum stjórnsýslulögum kveðið á um réttindi allra borgara til að fá mál sitt endurskoðað ef ný gögn eða upplýsingar gefa tilefni til. Þessi sérákvæði flækja reglur sem eru mjög skýrar og hafa gengið vel í öllum öðrum málaflokkum í áratugi. Ef mál hafa gengið eitthvað illa í meðförum Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála er mun líklegra að ástæðuna megi rekja til vanþekkingar eða skorts á þjálfun lögfræðinga þessara stofnana í meðferð stjórnsýslulaga. Tilgangurinn með þessu ákvæði er enda alls ekki að auka skilvirkni. Tilgangurinn er sá að útrýma öllum þeim málum sem eru að vinnast í endurupptökuferli sem gerist auðvitað bara af því að ný gögn og upplýsingar breyta forsendum málsins og leiða til annarrar niðurstöðu. Þetta þolir Útlendingastofnun ekki og vill stoppa það. Endurteknar umsóknir eru ekkert sérstakt vandamál hér á landi og óþarfi að fjölyrða um það. Þetta ákvæði frumvarpsins gengur mun lengra í því að skerða réttarvernd flóttafólks en að koma í veg fyrir endurteknar umsóknir.

Það að svipta fólk þeirri lágmarksaðstoð sem það fær að 30 dögum liðnum eftir lokasynjun er annað sem hér hefur verið rætt. Undanþegin eru börn, foreldrar eða umsjónarmenn barna og ættingjar, barnshafandi konur, alvarlega veikir einstaklingar og fatlaðir einstaklingar með langvarandi stuðningsþarfir. Tilgangur ákvæðisins er að þrýsta á fólk til þess að það hypji sig sjálft úr landi, sem það gerir ekki og getur þá lent á götunni. Hver er afleiðingin af því? Það að fólk lendi á götunni setur fólk ekki bara í viðkvæmari stöðu gagnvart hvers kyns ofbeldi eða neyð, heldur er það alls konar ófyrirséður vandi sem kostar íslenska ríkið miklu meiri peninga en að taka vel á móti fólki og hafa mannúð í fyrirrúmi þegar tekið er á móti flóttafólki. Hægt er að fresta þjónustusviptingunni ef útlendingurinn sýnir að hann hefur gert allt sem í hans valdi stendur til að aðstoða við flutninginn á sjálfum sér. Dæmi eru um fólk sem hefur reynt um árabil að sýna stjórnvöldum fram á að það geti ekki útvegað sér ferðaskilríki, sé jafnvel ekki ríkisborgarar í því ríki sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að viðkomandi sé frá. Hvaða þjónusta er það sem er verið að svipta fólk? 8.000 kr. á viku, herbergi, jafnvel með ókunnugum, neyðarheilbrigðisþjónusta, í raun fær fólk ekki fleira. Neyðarheilbrigðisþjónusta — hver er skilgreiningin á henni? Er geðheilbrigðisþjónusta neyðarheilbrigðisþjónusta? Mér finnst það ólíklegt en geðheilbrigðisþjónusta ætti að vera neyðarheilbrigðisþjónusta ef fólk er í sjálfsvígshættu, ef fólk er með mikla og alvarlega áfallastreitu vegna þess sem það hefur orðið fyrir í sínu heimalandi, vegna alls sem tengist því að vera flóttamaður og þess sem hefur gengið á áður en fólk kemur hingað, hvort sem það er barn eða fullorðinn. Ég vona að við getum aldrei sett okkur í þau spor en það er mjög alvarlegt að við séum ekki að veita geðheilbrigðisþjónustu, ef hún er ekki inni í þessari neyðarheilbrigðisþjónustu sem mér finnst ólíklegt.

Breytingarnar munu heimila Útlendingastofnun að vísa fólki til annarra landa en heimaríkis sem það er ekki með neina heimild til komu eða dvalar í. Slíkar ákvarðanir eru óframkvæmanlegar því að ríki geta ekki bara droppað fólki þangað sem þeim dettur í hug. Breytingin er lögð til í samfloti við þjónustusviptinguna því að fólk þarf að fara sjálft enda þvingaðir flutningar ekki í boði nema fólk hafi heimild til komu eða dvalar í móttökuríkinu eða að móttökuríkið samþykki það. Það er verið að eyðileggja mikilvægar réttarbætur sem gerðar voru um árið, með lögum sem sett voru árið 2016, þar sem settir voru inn frestir fyrir stjórnvöld til að komast að niðurstöðu. Eftir breytingarnar er enginn þrýstingur á stjórnvöld að klára málin hratt og fólk öðlast engin réttindi þrátt fyrir að málsmeðferð stjórnvalda taki mörg ár. Kostnaður við málsmeðferð og uppihald fólks eykst til muna. Heimild kvótaflóttafólks til fjölskyldusameiningar við maka er skert. Þetta eru fyrst og fremst konur og hinsegin karlar sem koma makalausir í gegnum Flóttamannastofnunina og svo kemur maki í ljós í heimalandinu og óskað er eftir fjölskyldusameiningu fyrir viðkomandi. Stjórnvöld móðgast yfir þessu en þetta er ekki sérstakt vandamál. Það á bara að loka fyrir þetta því að stjórnvöld móðgast og finnst fólk vera að svindla með því að nefna makann ekki fyrr. Þetta eru fá tilvik en almenn regla sem brýtur á réttindum flóttafólks og er algjörlega tilgangslaus. Fólk er að vernda maka sinn í sínu heimalandi.

Og svo er það það að veita einstaklingum með dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða atvinnuleyfi.

Forseti. Það hafa borist margar umsagnir frá mismunandi aðilum og vil ég reifa nokkrar þeirra. Ég ætla að byrja á að tala um umsögnina frá Barnaheillum. Þar segir að ítrekað hafi verið kallað eftir samráði en kallinu hafi ekki verið svarað. Það sé ótækt að tafir sem rekja megi til aðstandenda barns komi niður á rétti barns til efnismeðferðar. Þetta hafa Barnaheill m.a. að segja um frumvarpið.

Landlæknir er einnig með athugasemdir í umsögn sinni og segir að það sé óásættanlegt að svipta fólk rétt til heilbrigðisþjónustu að 30 dögum liðnum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Vart þurfi að fjölyrða um alvarlegar afleiðingar sem stöðvun heilbrigðisþjónustu, hvort heldur er vegna langvinnra sjúkdóma eða bráðra, getur haft í för með sér, ef ekki sé brugðist við því sem upp kemur. Landlæknir segir einnig að það séu grundvallarmannréttindi að njóta heilbrigðisþjónustu en í alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi sé m.a. í 12. gr. talað um „rétt sérhvers manns til að njóta líkamlegrar og andlegrar heilsu að hæsta marki sem unnt er“. Fyrir utan að það sé ómannúðlegt að neita einstaklingi um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu geti það boðið heim hættu fyrir aðra, t.d. ef einstaklingur er haldinn smitsjúkdómi eða geðröskun sem hugsanlega eru ekki metnir alvarlegir við fyrstu sýn. Hér er aftur talað um geðraskanir og mikilvægi þess að fólk fái úrlausn sinna mála ef það glímir við geðraskanir, einstaklingar sem eru flóttamenn, flóttafólk, eru ábyggilega líklegri en aðrir til að glíma við geðröskun og þá sérstaklega í formi áfalla og vera með áfallastreituröskun. Ef áfallastreituröskun er ómeðhöndluð, ef ekki er farið í meðferð við alvarlegri áfallastreituröskun, getur sú röskun haft mjög slæm áhrif, ekki bara á einstaklinginn heldur líka á fjölskyldu einstaklingsins sem er með þessa röskun og því er mjög mikilvægt að við tökum því alvarlega að fólk fái geðheilbrigðisþjónustu. Það er mjög mikilvægt upp á heilbrigði þjóðarinnar, fjölskyldunnar, að fólk geti dafnað og geti sótt sér þá þjónustu sem það á rétt á. Við græðum ekkert á því að þjónusta ekki fólk sem þarf þjónustu. Það eina sem getur gerst er að það kostar okkur meiri peninga og einstaklingum í samfélaginu líður verr. Það er enginn gróði fyrir neinn.

Hafnarfjarðarbær sendi einnig inn sína umsögn. Þar segir, með leyfi forseta:

„Frestun réttaráhrifa hefur gert það að verkum að Útlendingastofnun getur ekki tekið til skoðunar að endurupptaka mál þó svo talsmenn og/eða við bendum á virkilega slæmar kringumstæður hjá fjölskyldum vegna barnaverndarmála eða annarra kringumstæðna. Þannig sjáum við mál festast í kerfinu og engin sjáanlegur endir er á málsmeðferð. Teljum við því þurfa að skoða vel mál sem komin eru út fyrir málsmeðferð á stjórnsýslustigi enda getur ekki sú biðstaða sem fjölskyldur eru settar í, sér í lagi börn, staðist barnasáttmálann og önnur lög sem sett eru í þágu barna.“

Íslandsdeild Amnesty International sendi einnig inn umsögn þar sem segir um 2. gr. frumvarpsins að lagt sé til að ákvarðanir Útlendingastofnunar um synjun á efnislegri meðferð á grundvelli 36. gr. laga um útlendinga sæti sjálfkrafa kæru sem þurfi að berast innan 14 daga frá birtingu ákvörðunar. Áfram segir í þeirri umsögn:

„Gagnaöflun vegna kæru er háð afhendingu gagna frá Útlendingastofnun sem gefur sér að lágmarki 10 virka daga til þess að afhenda skjöl. Það sama á við um gagnaöflun frá öðrum stjórnvöldum og aðilum almennt. Sú staðreynd að umsækjendur geta ekki treyst því að gögn verði afhent þeim með stuttum fyrirvara á meðan mál þeirra sæta sjálfkrafa kæru, mun leiða til þess að umsækjendur um alþjóðlega vernd verða ófærir um að undirbúa viðunandi málsvörn og að mál þeirra sé nægjanlega upplýst í skilningi rannsóknarreglu stjórnsýslulaga þegar ákvörðun er tekin. Tillögð lagabreyting felur í sér áhættu um að þessi málaflokkur verði sá eini sem lýtur málsmeðferð innan stjórnsýslunnar þar sem málsaðilum er ekki tryggður sá kostur að njóta réttar síns til raunhæfs úrræðis til að leita réttar síns í skilningi 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Miðað við ofangreint mun ákvæðið leiða til verulegrar skerðingar á réttarvernd umsækjenda um alþjóðlega vernd.“

Í sambandi við 6. gr. gagnrýnir Íslandsdeildin heimild til að skerða eða fella niður grunnþjónustu að 30 dögum liðnum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Um sé að ræða grundvallarmannréttindi sem snúi að grunnþörfum fyrir fæði, húsnæði og nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Mikilvægt sé að tryggja að einstaklingar fái notið mannréttinda sinna að fullu þegar fyrir liggur framkvæmdarhæf ákvörðun í málum þeirra, sérstaklega í ljósi þess að slík ákvörðun komi oft ekki til framkvæmda svo mánuðum skiptir. Sá sem bíði endursendingar njóti þá hvorki réttar til almennrar félagsþjónustu né hafi hér atvinnurétt. Varðandi undanþágur og skerðingu réttinda alvarlegra veikra og fatlaðra einstaklinga með langvarandi stuðningsþarfir hefur Íslandsdeild gert alvarlegar athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd teljast vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þá hafi Útlendingastofnun ítrekað vanrækt skyldur sínar til að rannsaka hvort einstaklingur teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu og hafi tekið ákvarðanir í málum áður en mikilvæg heilbrigðisgögn hafa borist stofnuninni. Þrátt fyrir umrædda undantekningu á meginreglunni um niðurfellingu þjónustu sé líklegt í ljósi fyrri reynslu á mati Útlendingastofnunar að breytingin muni samt sem áður bitna harðast á einstaklingum í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Hvað varðar 7. gr. er það gagnrýnt að endurtekin umsókn sé háð því að sýnilega auknar líkur séu á umsókn verði samþykkt. Viðbótarkrafa um að gögn auki sýnilega líkur á vernd sé einkum til þess fallin að skapa útilokunarástæður fyrir stjórnvöld til að réttlæta synjun á fleiri umsóknum umsækjenda um alþjóðlega vernd, um endurskoðun á máli þeirra og eftir atvikum til að vísa þessum umsóknum frá. Það séu mun strangari skilyrði en t.d. í sænsku löggjöfinni. Í 24. gr. stjórnsýslulaga um rétt til endurupptöku máls sé kveðið á um að lágmarkskröfur til stjórnsýslunnar og ákvæði í sérlögum geti ekki gengið framar þeim réttindum sem borgurum eru tryggð með ákvæðum laganna. Tillögð ný málsmeðferð veiti umsækjendum minna réttaröryggi en lágmarkskrafa stjórnsýslulaganna.

Í 8. gr., um vernd í öðru ríki, er talað um að breytingarnar virðist hafa það að markmiði að útiloka þá sem þegar hafa fengið vernd í öðrum Evrópuríkjum frá vernd hérlendis óháð raunverulegum aðstæðum viðkomandi ríkis eða viðkomandi umsækjanda. Aðbúnaður flóttafólks í Grikklandi hafi m.a. verið gagnrýndur af Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Amnesty International. Fjölmargar heimildir, svo sem skýrslur Evrópuráðsins og mannréttinda- og frjálsra félagasamtaka, gefi til kynna að raunverulegri stöðu flóttafólks í Grikklandi sé verulega ábótavant. Í nýlegum úrskurði komi beinlínis fram að það sé mat hennar að það sé ljóst af fyrirliggjandi gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifi oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Það stangist á við regluna um að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standi til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð.

Í umsögn um 13. gr. gagnrýnir Amnesty International takmarkanir á fjölskyldusameiningu, þeir einir geti verið grundvöllur fjölskyldusameiningar sem uppfylla skilyrði 37. og 39. gr. laganna. Þannig uppfylli einstaklingar sem hafa fengið alþjóðlega vernd á grundvelli 45. gr. ekki skilyrði fyrir frekari fjölskyldusameiningu á grundvelli ákvæðisins. Ekki verði séð hvaða ástæður eða nauðsyn liggi að baki tillögunni auk þess sem rík mannúðarsjónarmið liggi að baki því að leyfa sameiningu fjölskyldna í tilviki þeirra sem hafa fengið alþjóðlega vernd á grundvelli 2. mgr. 45. gr. laganna.