útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég ætla að halda áfram þar sem ég lét staðar numið hérna áðan þar sem ég var að furða mig á þessari þráhyggju ríkisstjórnarinnar þegar kemur að því að ýta og þröngva þessu vonda, glataða frumvarpið í gegn, sem er mjög illa unnið, ætla ég að leyfa mér að segja, og ekki verið að taka mark á umsögnum umsagnaraðila. Ég ætla bara að fara í gegnum eina umsögn frá Barnaheillum til að byrja með. Ég ætla að byrja á 8. gr. af því að mér líður eins og ég sé ekki búin að fara nógu ítarlega í 8. gr. Ég er búin að fara frekar ítarlega í 2. og 6. gr. frumvarpsins en nú ætla ég bara í 8. gr. og mér finnst best að byrja á því að vísa í umsagnir. Þar segir, með leyfi forseta:
„1. Í greinargerð með frumvarpinu segir um a-lið 8. greinar, sem á að breyta a-lið 1. mgr. 36. gr. laganna að henni eigi að breyta í tvo stafliði. Svo virðist sem ekki komi fram hvernig síðari stafliður eigi að hljóma. Það kunna að vera mistök.
2. Óljóst er að mati Barnaheilla hvort tímafrestir varðandi það hvort taka eigi mál til efnismeðferðar að loknum biðtíma, ef niðurstaða á stjórnsýslustigi liggur ekki fyrir innan 12 mánaða, eigi við um börn þar sem nú er kveðið á um það í reglugerð um útlendinga að ef ákvörðun liggur ekki fyrir innan 10 mánaða frá því að umsókn var gerð skuli taka mál barns til efnismeðferðar. Mikilvægt er að það verði skýrt í greinargerð með frumvarpinu hvort með 8. grein frumvarpsins sé ætlunin að þrengja rétt barna til efnismeðferðar ef dráttur verður á afgreiðslu umsóknar af hálfu útlendingayfirvalda.
Hvað varðar þá breytingu á tímafresti að miða við að efnismeðferð skuli veitt ef lokaniðurstaða á stjórnsýslustigi liggur ekki fyrir innan 12 mánaða vilja Barnaheill taka undir sjónarmið og umfjöllun Rauða krossins um ákvæðið og tillögu þeirra um að halda 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. gildandi laga óbreyttum en breyta 2. mgr. 74. gr. laganna til samræmis við hann, þannig að miðað verði við heildardvalartíma sem barn er hér á landi og ef hann dregst fram yfir 10 mánuði frá því að umsókn var lögð fram skuli mál þess verða tekið til efnismeðferðar.
3. Mikilvægt er að mati Barnaheilla að það sé skýrt að tafir á meðferð máls sem rekja megi til aðstandenda barns skuli aldrei túlka barni í óhag við málsmeðferð umsóknar þess, það skyldi aldrei koma niðri á barni ef aðstandandi þess er valdur að töfum því að barn getur ekki og á ekki að bera ábyrgð á þriðja aðila.
4. Það er enn fremur mikilvægt að mati Barnaheilla að árétta að öll mál sem varða börn skal alltaf meta með hagsmuni barns að leiðarljósi og taka ákvörðun á grundvelli þess sem talið er barni fyrir bestu að loknu mati. Tímafrestir mega ekki leiða til þess að mat á hagsmunum barns verði illa unnið.“
Virðulegi forseti. Þetta eru athugasemdir Barnaheilla við 8. gr. frumvarpsins og bara svona til þess að draga þetta saman þá sýnist mér kjarninn í þessari athugasemd vera að þetta frumvarp, þetta ákvæði sér í lagi, muni vega harkalega og íþyngjandi að hagsmunum barna. Ég ætla bara að taka undir þau sjónarmið. Það liggur alveg skýrt fyrir að við ákvörðun stjórnvalda, þegar kemur að því að úrskurða um réttindi og skyldur borgara, eigi ákvörðunin alltaf að taka mið af því sem er barni fyrir bestu. Það stendur líka m.a. í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem búið er að fullgilda hér á Íslandi og lögfesta líka, held ég, ég held að séum við búin að lögfesta hann.
Því spyr ég mig hvort sérfræðingar dómsmálaráðuneytisins sem komu að gerð þessa frumvarps séu búnir að meta þetta lagaákvæði með tilliti til sjónarmiða sem fram hafa komið í þessari umsögn og líka með tilliti til barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Mér þykir þetta rosalega skrýtið og ég held að í orðalaginu liggi það skýrt fyrir að þetta muni vega harkalega að hagsmunum barna og að háttsemi þriðja aðila, einhvers fullorðins, muni þá hafa afleiðingar á hagsmuni barnsins og úrskurða um réttindi þess, sem er náttúrlega rosalega skrýtið og eitthvað sem ég hélt að við værum löngu búin að lögfesta að ekki megi gerast. Mér finnst þetta bara frekar úrelt frumvarp hvað varðar þetta.
Virðulegi forseti. Þú mátt endilega setja mig aftur á mælendaskrá.