útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Frú forseti. Ég er hérna að fara yfir b-lið 8. gr. frumvarpsins og ætla að byrja á því að grípa aðeins niður í umsögn Rauða krossins um þetta ákvæði. Hér rétt áðan las ég úr umsögn Rauða krossins um 6. gr. vegna þess að þar er einmitt bent á vandamálið sem skapast af því ef 8. gr. verður samþykkt, sem snýst um það að heimila Útlendingastofnun að vísa fólki þangað sem mönnum dettur í hug án þess að heimilt sé að flytja það þangað. Með leyfi forseta:
„Með 8. gr. frumvarpsins eru gerðar umtalsverðar breytingar á efni og innihaldi 36. gr. útl. Í frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að við 1. mgr. bætist nýr stafliður, d-liður, sem felur í sér sjálfstæðan grundvöll til að synja um efnislega meðferð umsókna um alþjóðlega vernd.“
Ég geri hér hlé á tilvitnun til að þýða þetta á íslensku: Það er verið að bæta inn nýrri heimild fyrir Útlendingastofnun til að vísa umsókn frá án þess að skoða hana. Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Ákvæðið er svohljóðandi: Umsækjandi hafi slík tengsl við annað ríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað enda þurfi hann ekki að sæta ofsóknum þar, geti óskað eftir að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.
Af frumvarpinu og eldri frumvörpum má vera ljóst að d-lið 36. gr. útl. er ætlað að vera útfærsla á hugtakinu um „fyrsta griðland“. Í athugasemdum við 8. gr. frumvarpsins segir að núverandi ákvæði a-liðar 1. mgr. 36. gr. útl. um fyrsta griðland hafi ekki verið beitt að fullu þar sem það er talið óskýrt. Rauði krossinn telur að í mörgum tilvikum verði ekki unnt að framkvæma ákvarðanir sem teknar verða á grundvelli d-liðarins enda gert ráð fyrir að hægt verði að synja umsækjanda um efnismeðferð ef hann hefur náin fjölskyldutengsl við ríki sem hann hefur þó aldrei komið til, s.s. þegar maki hans er ríkisborgari þess ríkis og umsækjandi getur á þeim grundvelli fengið dvalarleyfi.
Ekki er fjallað um það í frumvarpinu hvernig íslensk stjórnvöld sjá fyrir sér framkvæmd endursendinga til ríkja á þessum grundvelli fyrir utan tilvísun í ákvæði 38. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/32/ESB, enda engir viðtökusamningar í gildi nema við aðildarríki Dyflinnarreglugerðarinnar.“
Ég ætla að gera hér hlé á tilvitnuninni. Hvað þýðir þetta? Það þýðir í fyrsta lagi að hugtakanotkunin „fyrsta griðland“ er röng. Hugtakið „fyrsta griðland“ snýst um það að fólk geti sótt um vernd í fyrsta örugga ríkinu sem það kemur til á flótta sínum. Hins vegar erum hérna við að tala um ríki sem fólk hefur jafnvel aldrei komið til, þ.e. svokallað „þriðja öruggt ríki“, á ensku, með leyfi forseta: „Safe third country“ en ekki „fyrsta griðland“, á ensku, með leyfi forseta: „First country of asylum“.
Alla vega eru þetta tvö aðskilin hugtök. Því er það í rauninni, hvað á ég að segja, misskilningur að verið sé að byggja á þessu en því miður grunar mig að sá misskilningur sé mögulega ekki óvart þar sem það er viðurkennt í þjóðarrétti að samkvæmt reglunum um fyrsta griðland sé heimilt — það er svona almennt heimilt, það er kannski ekki bein regla heldur viðmið að það sé heimilt að vísa fólki til fyrsta ríkisins sem kom til. Þetta er þó háð því að búið sé að gera endurviðtökusamninga við viðkomandi ríki eða að einstaklingurinn hafi heimild til komu og dvalar þar.
Engin slík krafa er gerð hér. Það var ágætlega orðað í ræðu um daginn, þó að því miður muni ég ekki nákvæmlega hver það var sem hafði svo orð á, að þarna sé verið að búa til einhvers konar alheims-Dyflinnarreglugerð. En vandinn er sá að Dyflinnarreglugerðin er með fjölmarga varnagla. Í fyrsta lagi gildir Dyflinnarreglugerðin meðal tiltekinna ríkja, sem eru Evrópuríki sem hafa líka ýmsar aðrar reglur um meðferð hælisumsókna og annað. Dyflinnarreglugerðin slær líka varnagla í tengslum við fylgdarlaus börn á flótta, fjölskyldutengsl og annað slíkt og hefur tímafresti. Þessi alheims-Dyflinnarreglugerð, sem verið er að finna upp hérna bara algerlega út í bláinn fyrir Útlendingastofnun, hefur enga slíka varnagla. Það er ekki einu sinni gerð krafa um að ríki sem fólk er sent til sé aðili flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna og gerði Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna raunar athugasemd við það. — Ég er hér fallin á tíma í bili og óska eftir því við forseta að fá að fara aftur á mælendaskrá.