153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:13]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég held áfram að lesa úr greinargerð með frumvarpi vegna mannréttindasáttmála Evrópu. Með leyfi forseta:

„Ráðherranefndin hefur bæði úrskurðar- og eftirlitshlutverki að gegna varðandi kærur vegna brota gegn mannréttindasáttmálanum. Svo sem nánar er rakið í kaflanum um mannréttindanefndina hér að framan sendir hún skýrslu sína um hvort aðildarríki hafi brotið gegn sáttmálanum til ráðherranefndarinnar í samræmi við ákvæði 31. gr. samningsins um verndun mannréttinda og mannfrelsis.

Í tilvikum þeim, sem nánar eru rakin í kaflanum um mannréttindanefndina, úrskurðar ráðherranefndin skv. 32. gr. samningsins um hvort um brot sé að ræða.

Í 54. gr. samningsins kemur fram að dómar mannréttindadómstólsins verði fengnir ráðherranefnd Evrópuráðsins, sem hefur þá eftirlit með því, að ríkið, sem dómur hefur gengið gegn, geri ráðstafanir til að fullnægja honum. Ráðstafanir aðildarríkis af slíku tilefni ráðast af atvikum hverju sinni og geta í sumum tilvikum verið fólgnar í því einu að inna af hendi skaðabætur eftir ákvæðum dóms. Í öðrum tilvikum getur úrlausn leitt af sér breytingu laga til aðlögunar að ákvæðum sáttmálans til að ríkið geti talist fullnægja skuldbindingum sínum samkvæmt honum. Ráðherranefndin á að fylgjast með því að ríkið bregðist á viðeigandi hátt við niðurstöðum dóms. Ráðherranefndin hefur sett sérstakar reglur um það hvernig ákvæði um eftirlit skuli beitt. Reglur þær, sem nú gilda, eru frá 1976. Þegar niðurstaða dómstólsins hefur orðið sú að sáttmálinn hafi verið brotinn og dómstóllinn eftir atvikum ákvarðar kærandanum sanngjarnar bætur samkvæmt 50. gr. sáttmálans óskar nefndin eftir upplýsingum frá viðkomandi ríki um þær ráðstafanir sem það hefur gert í tilefni dómsins.

Ráðherranefndin telur hlutverki sínu ekki lokið fyrr en hún hefur fjallað um þær upplýsingar sem ríkisstjórnin hefur gefið og hún er fullviss um að ríkið hafi greitt þeim bætur sem brotið var á þegar bætur hafa verið dæmdar í samræmi við 50. gr. sáttmálans. Nefndin afgreiðir málið með ályktun að lokum. Vanræki ríki að fara eftir dómi getur það leitt til þess að ríkinu verði vikið úr Evrópuráðinu á grundvelli 8. gr. stofnskrár þess, en önnur úrræði eru ekki fyrir hendi til að framfylgja dómi mannréttindadómstólsins.

Frá 1955 til ársloka 1990 hafði ráðherranefnd Evrópuráðsins alls kveðið upp 95 úrskurði skv. 32. gr. samningsins um verndun mannréttinda og mannfrelsis um að aðildarríki hafi brotið gegn mannréttindasáttmála Evrópu, en þau mál hafa þá ekki verið lögð fyrir mannréttindadómstólinn. Í sex tilvikum var um að ræða kærur milli aðildarríkja að sáttmálanum innbyrðis, en í hinum tilvikunum áttu málin rætur að rekja til kæra frá einstaklingum eða samtökum þeirra.“

Þetta er ákveðin samtrygging ríkja þarna sem þarf þá í rauninni dálítið mörg ríki til þess að rjúfa af því að það er pínu pólitík í þessu í rauninni þegar allt kemur til alls. Þau vilja öll gera vel gagnvart mannréttindasáttmálanum af góðum og gildum sögulegum ástæðum og vísa þar í bæði fyrri en kannski aðallega seinni heimsstyrjöldina sem þessi ríki voru nýskriðin úr með öllum þeim hörmungum. Þaðan kemur kannski tilfinning þeirra um að þá þurfi að sinna þessu mjög vel. Það sem gerist síðan er: Hvernig geta ríkin fengið hvert annað til að sinna þessu í sínu heimalandi, af því að hvert ríki er náttúrlega sjálfstætt og ræður því hvernig það hagar málum í sínu heimalandi? Þá er þetta sett fram sem ákveðinn ábyrgðarvettvangur þar sem einstaklingar eða samtök geta borið kærur sínar fram. Og það er bara dálítið vandræðalegt fyrir utanríkisráðherra hvers ríkis fyrir sig að þurfa að standa frammi fyrir því gagnvart öllum hinum Evrópuþjóðunum að vera að brjóta á ákvæðum þessa sáttmála út af mikilvægi hans, út af tilurð hans, út af því hvaðan hann er upprunninn. Það er bara mjög vandræðalegt að þurfa að vera ríkið sem segir: Heyrðu, já, við vorum að gera svona dálítið skrýtna hluti og mannréttindadómstóllinn sagði að við hefðum brotið á mannréttindasáttmálum, sem við samþykktum hérna öll að við ættum að fara eftir svo að atburðir eins og seinni heimsstyrjöldin myndu ekki gerast aftur með öllum þeim hörmungum sem þar voru. Það er bara mjög vandræðalegt. Þess vegna er þetta ákveðinn samtryggingarvettvangur sem getur auðvitað að vissu leyti brotnað ef öll ríkin ákveða að gefa skít í þetta. En hingað til, sem betur fer, hefur þetta haldist. Það er vissulega brothætt að verja þessi réttindi því að þau eru einmitt gegn stjórnvöldum. (Forseti hringir.) Þau eru ætluð til þess að verja borgara hverjum hvers lands fyrir sig í Evrópu gegn stjórnvöldum. — Ég bið forseta vinsamlegast um að setja mig aftur á mælendaskrá .