153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:24]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Virðulegi forseti. Ég var að tala um 2. gr. áðan. Ég ætla núna að fara aðeins út í 6. gr. sem varðar það að svipta umsækjendur, sem hefur verið synjað um alþjóðlega vernd hér á landi, grunnþjónustu. Ég veit ekki hvort þið munið eftir því en fyrir tæplega tveimur árum henti Útlendingastofnun nokkrum Palestínumönnum út á götuna og svipti þá húsnæði og aðgangi að heilbrigðisþjónustu. Þetta fór í fjölmiðla en Útlendingastofnun stóð samt sem áður við skoðun sína. Síðan fór málið fyrir kærunefnd útlendingamála og nefndin komst að þeirri niðurstöðu að þetta hefði verið ólögmæt aðgerð. Það sem þessi 6. gr. gerir, virðulegi forseti, er að lögfesta þessa framkvæmd, sem kærunefnd útlendingamála hefur þegar komist að niðurstöðu um að sé ólögmæt, og veita þessu lagastoð.

Ég ætla hér að lesa um kærunefnd útlendingamála á vef Stjórnarráðs Íslands, með leyfi forseta:

„Kærunefnd útlendingamála er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem hóf störf 1. janúar 2015 í kjölfar lagabreytinga sem gerðar voru vorið 2014 á lögum um útlendinga nr. 96/2002. Með lagabreytingunni var almenn kæruleið vegna ákvarðana um útlendingamál færð frá dómsmálaráðherra til hinnar nýju kærunefndar. Við úrlausn mála hefur kærunefnd útlendingamála sömu valdheimildir og ráðherra sem úrskurðaraðili á æðra stjórnsýslustigi.“

Virðulegi forseti. Ég held að valdheimildir kærunefndar útlendingamála liggi bara frekar skýrt fyrir og hæstv. dómsmálaráðherra áttar sig greinilega á því að þetta eru úrskurðir á æðra stjórnsýslustigi og því þýði ekkert að rífast við þau um þetta. En þá tekur hann bara auðveldu leiðina og lögfestir þessa ólögmætu framkvæmd á sviptingu grunnþjónustu í lögum um útlendinga. Hér ætla ég að lesa úr núverandi lagabálki, nr. 80/2016, lög um útlendinga, 2. mgr. 4. gr., sem fjallar almennt um framkvæmd laganna. Þar segir, með leyfi forseta:

„Útlendingastofnun, kærunefnd útlendingamála, lögregla, sýslumenn, Þjóðskrá Íslands og önnur stjórnvöld annast framkvæmd laga þessara.“

Þetta þýðir að þau lög sem við erum að lögfesta hér eiga við Útlendingastofnun, kærunefnd útlendingamála, lögregluna, sýslumenn, þjóðskrá og önnur stjórnvöld, að þau muni fá heimild til að beita þessum ömurlegu lögum sem við erum að tala um hér.

Síðan ætla ég ætla að lesa úr 1. mgr. 6. gr., um hlutverk, valdsvið og skipan kærunefndar útlendingamála, en þar segir, með leyfi forseta:

„Kærunefnd útlendingamála er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem úrskurðar í málum sem til hennar eru kærð á grundvelli 7. gr. Úrskurðum nefndarinnar er ekki unnt að skjóta til æðra stjórnvalds.“

Virðulegi forseti. Hér ætla ég að mála upp sviðsmynd. Kærunefnd útlendingamála komst að þeirri niðurstöðu að þessi framkvæmd, að svipta tiltekinn hóp í íslensku samfélagi réttindum, sem fer, nota bene, gegn jafnræðisreglu stjórnsýslulaga og líka gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar, sem er 65. gr. stjórnarskrárinnar — ef það á virða stjórnsýslulögin að vettugi þá má alla vega virða stjórnarskrána, sem þessi ríkisstjórn er orðin frekar góð í að hunsa. En hér áttaði hæstv. dómsmálaráðherra sig á því að þessum úrskurði, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að þetta væri ekki lögum samkvæmt, er ekki hægt að skjóta til æðra stjórnvalds og þar liggur málið bara. — Jú, jú, hendum þá bara í eitt stykki lagaákvæði í þessu ömurlega frumvarpi sem mun festa þessa aðgerð í sessi og veita henni lagastoð. Af hverju ekki?

Í 2. mgr. 6. gr. segir, með leyfi forseta:

„Við úrlausn mála hefur kærunefnd útlendingamála sömu valdheimildir og ráðherra sem úrskurðaraðili á æðra stjórnsýslustigi.“

Flott. Þetta er bara frábært. Þetta er bara nákvæmlega það sama og var í 1. mgr. Þetta snýst um valdheimildir kærunefndarinnar og þetta er bara hæstv. dómsmálaráðherra að reyna að finna sér leið til að fara í kringum þessar valdheimildir, fara í kringum þennan úrskurð, sem er fullnaðarúrskurður og er ekki hægt að skjóta til æðra stjórnvalds, með því að veita þessu lagastoð. Þetta er svo fáránlegt lagaákvæði. Það eru margir búnir að vara við þessu en ríkisstjórnin neitar einfaldlega að hlusta. Það verða afleiðingar af þessu sem við og fleiri erum búin að vara við. — Virðulegi forseti. Þú mátt setja mig aftur á mælendaskrá.