útlendingar.
Forseti. Ég ætla að halda áfram að fara yfir umsagnir í megindráttum, það sem umsagnaraðilar hafa reynt að koma á framfæri og hafa komið á framfæri, en það er bara misjafnt hvort hlustað er á það eða ekki. Ég var að fara yfir umsagnir frá Íslandsdeild Amnesty International og var komin í mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. Þar má finna meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Í umsögninni segir, með leyfi forseta:
„Mikilvægt er að einstaklingar á flótta geti sameinast fjölskyldum sínum, enda getur aðskilnaður þeirra við fjölskyldur sínar reynst þeim afar þungbær, haft neikvæð áhrif á möguleika þeirra til að aðlagast og gerast virkir þátttakendur í samfélaginu.“
Amnesty leggst alfarið gegn þeirri breytingu sem mælt er fyrir um í 12. gr. frumvarpsins og hvetur stjórnvöld til að draga það til baka. Þetta eru frekar harðorð ummæli hjá Amnesty að leggjast alfarið gegn þessu. Ég held að það sé ekki oft sem mannréttindasamtök leggjast alfarið gegn einhverju og ber að taka það mjög alvarlega þegar það er mjög afdráttarlaust að þau leggjast alfarið gegn þessari breytingu.
Mig langar aðeins að tala um fjölskyldusameiningu og mikilvægi þess að það sé möguleiki fyrir þessa einstaklinga að sameinast fjölskyldum sínum og hvaða áhrif einangrun og það að vera mögulega einangraður í ókunnu landi getur haft á einstaklinga.
Nú fyrir skemmstu fékk ég svar við fyrirspurn minni til dómsmálaráðherra þar sem ég fékk upplýsingar um fylgdarlaus börn eða einstaklinga sem koma til landsins og tjá yfirvöldum að þau séu börn. Það voru 178 einstaklingar á síðastliðnum níu árum sem komu til Íslands og sögðust vera börn. Það var metið sem svo að 66 af þessum 178 einstaklingum væru ekki börn heldur væru þau fullorðin í laganna skilningi. Fullorðinn, þá erum við að tala um einstakling sem er 18 ára eða eldri, einn í ókunnugu landi, talar ekki tungumálið, er ekki með neinn til að vernda sig. Hvað ætlum við að gera fyrir þennan einstakling? Samkvæmt þessu ætlum við að skoða hvort hann fái vernd. Ef hann fær ekki vernd, þá hvað? Þá fær hann 8.000 kr. á mánuði, fær ekki heilbrigðisþjónustu, lendir á götunni. Þarna ertu með ungan einstakling sem kemur og segist vera barn. Það eru teknar myndir af tönnunum, það eru teknar myndir af höndunum, af úlnliðnum og þá er ákveðið: Nei, veistu, þú ert örugglega 18 ára og nokkurra mánaða þannig að þú ert ekki barn hér. Og hvað gerist svo? Hvað gerist í kjölfarið á því?
Þið sem þekkið til 18 ára einstaklinga í þjóðfélaginu, og margir hverjir eru örugglega með einstaklingana heima hjá sér enn, þeir búa í foreldrahúsum og eru í skóla eða vinnu, ímyndið ykkur nú að þessir einstaklingar, þessi ungmenni, ekki börn en ungmenni, séu síðan bara mætt einhvers staðar erlendis og hafi engan með sér þar. Þau kunna ekki tungumálið, tala ekki ensku og tala ekki íslensku. Þau eru bara ein á báti. Það er nefnilega ótrúlegt að við ætlum að búa þannig að fólki að við ætlum ekki að veita því nein úrræði heldur meiri neyð. Við ætlum að búa til meiri neyð. Hvað gerir fólk í neyð? Mér finnst svo furðulegt að hugsa til þess að það er eins og ekki sé skilningur á því hvernig einstaklingurinn virkar, hvernig við björgum okkur. Við reynum að bjarga okkur ef líf okkar liggur við, ef öryggi okkar er undir. En við erum líka viðkvæmari. Við erum viðkvæmari fyrir því að vera veik, við erum viðkvæmari fyrir því að fá geðsjúkdóma. Við værum því að búa til einstaklinga sem væru í miklu viðkvæmari og veikari stöðu, í staðinn fyrir að við gætum hreykt okkur af því að taka vel á móti fólki og sjá vel um það og veita því öryggi og þjónustu á meðan það er hér, hvort sem það síðan verður hér að eilífu eða ekki. Þessir ungu einstaklingar, sem eru þá alla vega 66 talsins síðastliðin níu ár, sem voru taldir fullorðnir í laganna skilningi eftir að hafa farið í gegnum aldursgreiningu hjá Útlendingastofnun, hvernig erum við að græða á því að koma ekki vel fram við þessa einstaklinga og hjálpa þeim og styðja þá í þeirri viðkvæmu stöðu sem þeir standa frammi fyrir? Það þarf ekkert annað en að líta til landa í kringum okkur til að sjá hver neyðin er ef fólk er einhvern veginn úti í horni og treystir engum og trúir því heldur ekki að samfélagið þar sem það er vilji það besta fyrir það.
Það er líka annað að trúa því að við berum virðingu fyrir þessum einstaklingum. Ef einhver ber virðingu fyrir þér þá berð þú virðingu fyrir honum á móti. Ef við berum ekki virðingu fyrir mannréttindum fólks, sérstaklega fólks á flótta, hvernig eiga þau að bera virðingu fyrir okkur? Þetta snýst um það. Þetta snýst um að bera virðingu fyrir mannslífinu, fyrir einstaklingum, sama hvaðan þeir koma, og grípa tækifærið sem við höfum til að aðstoða, ekki til að búa til neyð, ekki til þess að búa til einhver lögregluafskipti eða alls konar afleiðingar sem við vitum ekki hverjar verða, ófyrirséðar afleiðingar þess að þetta frumvarp fari í gegn. Það er einfaldlega svo.
Ég ætla einnig að tala um umsögn Kvenréttindafélags Íslands þar sem félagið gagnrýnir eftirfarandi, með leyfi forseta:
„Ekki hafi enn verið framkvæmt nægilegt jafnréttismat og hunsar frumvarpið þau ólíku áhrif sem slíkar lagabreytingar hafa á stöðu kynjanna.“
Í handbók Jafnréttisstofu segir að skoða þurfi hvort lögin muni koma til með að hafa „áhrif á líf fólks“ og hvort „munur sé á stöðu karla og kvenna í málaflokknum“. Í umsögninni segir jafnframt:
„Ekki er tekið tillit til sérstakrar stöðu kvenna eða annarra jaðarhópa.“ — Til dæmis þolenda mansals.
„Ekki hefur verið haft sérstakt samráð við fagaðila við vinnslu þessa frumvarps, eins og bent var á í sameiginlegri áskorun 15 félagasamtaka á Íslandi þann 19. maí 2022.“
Kvenréttindafélag áréttar vanrækslu Útlendingastofnunar við að meta hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Konur eru t.d. líklegri til að verða fyrir kynferðisofbeldi á meðan þær eru á flótta. Þær eiga einnig á hættu að deyja á meðgöngu eða af barnsburði (Forseti hringir.) ef þær fá ekki viðhlítandi heilbrigðisþjónustu.