153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:40]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég hef tekið eftir því í fundarsal Alþingis að hér eru afar fáir þingmenn og ráðherrar, eða raunverulega engir ráðherrar, til umræðu um dagskrármálið. Ég velti fyrir mér hvort forseta sé kunnugt um hvort ráðherrar og mögulega fleiri þingmenn hyggist taka þátt í umræðunni. Og verandi varaþingmaður sem er nýlega búinn að taka sæti þá kynnti ég mér lög um þingsköp og sá ekki betur en miðað við 65. gr. standi að þingmönnum sé skylt að sækja þingfundi nema brýn forföll beri til. Ég geri mér grein fyrir að veðurspáin er ekkert sérstök en það er ekki fyrr en í fyrramálið sem komin er appelsínugul viðvörun. Ég velti því fyrir mér hvort forseta sé kunnugt um hvers vegna þessi forföll eru sem valda því að hér eru þingmenn ekki til umræðu um afar mikilvægt mál sem brýnt er að við komumst til botns í í umræðunni.