útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmönnum Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur og Birni Leví Gunnarssyni, að hér eru ráðherrar ekki til til umræðu. Miðað við þá umræðu sem ég hef séð fara fram hérna þá er akkúrat málið að það er eins og við séum að ræða tvö mismunandi frumvörp. Má mögulega skýra það með þessum breytingum sem eru svo svakalegar að við höfum bara ekki fengið að sjá þær? Er þá ekki mikið tækifæri fyrir bæði ráðherra og þingmenn ríkisstjórnarinnar að koma hérna og ræða þetta við okkur, hvernig okkar skilningur getur verið svo svakalega mismunandi að við séum að tala um — af því að þetta er á íslensku, við ættum að vera að tala um sama hlutinn?