153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:45]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Við höfum nú oft rætt þann ósið ráðherra að svara engu í óundirbúnum fyrirspurnatímum, en óvíða kemur það jafn skýrt í ljós og þegar þau eru spurð út í þetta frumvarp sem við ræðum hér í dag. Þingmenn Pírata hafa nýtt óundirbúna fyrirspurnatíma til að spyrja félags- og vinnumarkaðsráðherra, mennta- og barnamálaráðherra og forsætisráðherra um þætti sem snúa að þeirra málaflokkum en engin svör fengið. Í framhaldinu höfum við kallað eftir viðveru þessara ráðherra hér í sal aftur og aftur og aftur, en þau þora ekki að mæta. Hæstv. barnamálaráðherra þorir ekki að mæta til að svara því hvernig hann réttlætir það að ganga freklega á rétt viðkvæmasta hóps barna sem fyrirfinnst, barna á flótta, sem þetta frumvarp, verði það að lögum, mun gera. (Forseti hringir.) Þegar hann var spurður út í þetta (Forseti hringir.) svaraði hann því ekki. (Forseti hringir.) Mun hann styðja þetta? Er hann enn þá barnamálaráðherra?

(Forseti (ÁLÞ): Forseti minnir á að ræðutíminn í fundarstjórn er ein mínúta.)