útlendingar.
Forseti. Varðandi viðveru ráðherra myndi ég vilja bæta aðeins við, ég hef nefnt þetta áður en mér finnst dálítið áhugavert þegar var verið að biðja um viðveru ráðherra út af þeirra málefnasviði og ráðherrar segja: Já, ég veit bara af því, en segja ekkert frekar. Ekki: Já, heyrðu, ég skal taka þátt í umræðunni. Ég skal taka klukkutíma hérna í ræðu og andsvör milli tvö og þrjú eða eitthvað svoleiðis á morgun, þannig að fólk geti mætt og til þess að taka þátt í þeirri orðræðu. Það er ekki það og það er ekki einu sinni sagt bara: Heyrðu, ég er búinn að heyra þetta en ég er ekkert að fara að mæta. Það er ekki einu sinni sú lágmarkskurteisi að láta okkur vita: Já, ég er búin að heyra þetta en nei, þið getið bara átt þessa umræðu. Mér finnst dálítið áhugavert, forseti, að ráðherrar komist einhvern veginn upp með það gagnvart löggjafarvaldinu, þinginu að hunsa það.