153. löggjafarþing — 61. fundur, 6. feb. 2023.
útlendingar.
382. mál
Forseti. Ég verð bara að taka undir með öðrum hv. þingmönnum sem hafa komið hér upp. Mér finnst þetta undarlegt. Komandi hérna inn sem varaþingmaður og ekki búin að vera hérna á fyrri stigum þessa máls finnst mér svo skrýtið að heyra að ráðherrarnir hafi ekki komið og kvatt sér hljóðs í þessu máli, talað um það, sagt: Bíddu, já, þetta er gott vegna þess að … Eða hvað? Er þetta ekki nógu mikilvægt? Er þetta of mikilvægt? Eiga þeir þá ekki að vera hérna? Hvernig er þetta allt saman?