útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Frú forseti. Ég held áfram með ræðu mína sem þjónar þeim tilgangi að tryggja að það sé alla vega búið að segja hér upphátt hvað verið er að gera með þessu frumvarpi svo að þingmenn geti ekki skýlt sér á bak við það, þegar þar að kemur, að þeir hafi ekki gert sér grein fyrir því, þó að ég efist ekki um að það muni verða svörin frá mörgum þegar afleiðingarnar af frumvarpinu koma í ljós.
Ég ætla að halda aðeins áfram með athugasemdir Rauða krossins á Íslandi við b-lið 8. gr. frumvarpsins. B-liður 8. gr. frumvarpsins snýst, sem fyrr segir, um að veita Útlendingastofnun heimild til að vísa fólki þangað sem stofnuninni finnst sanngjarnt og eðlilegt að viðkomandi fari, þó að viðkomandi hafi jafnvel ekki heimild til komu eða dvalar eða neinir samningar hafi verið gerðir.
Með leyfi forseta:
„Það er mat Rauða krossins að ef koma á til skoðunar að lögfesta ákvæði um að synja umsækjendum um efnislega meðferð á grundvelli hugtaksins um fyrsta griðland þegar móttökuríkið er ekki eitt af Schengen-ríkjunum verði að gera auknar kröfur til mats á aðstæðum í mögulegu móttökuríki og vernd flóttamanna. Það er mat Rauða krossins að ákvæði frumvarpsins sé óskýrt, of víðtækt og geri of litlar kröfur um vernd í móttökuríki og til mats á aðstæðum þar. Þá telur Rauði krossinn að við gerð frumvarpsins hefði átt að horfa til sjónarmiða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Rauði krossinn minnir á að skv. 2. mgr. 23. gr. útlendingalaga skulu íslensk stjórnvöld við framkvæmd ákvæða málsmeðferðareglna í málum um alþjóðlega vernd eiga í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, m.a. um framkvæmd og túlkun laga um útlendinga. […]
Í athugasemdum við ákvæðið segir m.a. að ekki sé gerð krafa um að móttökuríkið sé aðili að Flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna. “ — Berum orðum. — „Rauði krossinn furðar sig á því og telur það ótækt enda er flóttamannasamningurinn grundvöllur þeirra viðmiða sem Ísland og samanburðarríki Íslands setja um vernd flóttamanna. Rauði krossinn telur raunar vera mótsögn í því að í athugasemdunum segir að ekki sé gerð krafa um að móttökuríkið sé aðili að flóttamannasamningnum en í ákvæðinu segir engu að síður að umsækjandinn verði að geta fengið vernd í móttökuríkinu í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.
Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpinu er vísað til meginreglunnar um að vísa fólki ekki brott þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu […] og að gerð sé sú krafa til stjórnvalda að þau gangi úr skugga um að meginreglunni sé fullnægt. Rauði krossinn bendir á að samkvæmt sjónarmiðum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna […] felur það ekki í sér fullnægjandi mat enda eiga flóttamenn að njóta ríkari réttinda samkvæmt flóttamannasamningnum en þeirra sem felast í meginreglunni.“
Ég geri hlé á tilvitnuninni hér. Þetta er einmitt eitt þeirra ákvæða sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gerði athugasemdir við, en eins og ég hef nefnt áður í þessari pontu þá er Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna stofnun á vegum Sameinuðu þjóðanna sem ætlað er að tryggja að ríki sem hafa fullgilt flóttamannasamninginn hagi löggjöf sinni og framkvæmd í samræmi við samninginn. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna er ekki þekkt fyrir að vera róttæk stofnun. Hún er þekkt fyrir að setja alger lágmarksviðmið og hefur um tíðina kannski fyrst og fremst verið gagnrýnd fyrir að ganga ekki nógu langt. Þrátt fyrir það sér Flóttamannastofnunin ástæðu til þess að gera alvarlegar athugasemdir við þetta frumvarp og ekki nóg með það heldur kom stofnunin með mjög skýrar og einfaldar tillögur að breytingum á frumvarpinu til að tryggja að það sé í samræmi við flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna. Tók meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar og þar með meiri hlutinn hér á þingi eitthvað í þessar breytingartillögur? Voru þær teknar inn í frumvarpið? Var frumvarpinu breytt til samræmis? Nei.
Ég spyr mig til hvers í ósköpunum það var samþykkt hér inn í lögin árið 2016 að við framkvæmd flóttamannasamningsins á Íslandi skuli haft samráð við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna þegar það samráð er eingöngu til málamynda. Raunar virðist sem meira og minna allt samráð sem haft hefur verið um þetta frumvarp, sem hv. formanni allsherjar- og menntamálanefndar er tíðrætt um að hafi verið svo gríðarlega mikið, margir aðilar komið fyrir nefndina og margir aðilar skilað umsögnum — en það er ekkert hlustað. Er það raunverulegt samráð eða er það málamyndasamráð?
Þá vil ég aftur minnast á orð hæstv. forsætisráðherra sem komu fram hér undir liðnum óundirbúnum fyrirspurnum í dag þar sem hún var spurð út í það hvernig og hvort hún væri búin að undirbúa sitt ráðuneyti mannréttinda fyrir þær aðstæður ef aðvaranir hinna fjölmörgu umsagnaraðila, sem hafa lýst miklum áhyggjum af þessu frumvarpi, verða að veruleika, hvort búið sé að gera einhverja aðgerðaáætlun til að bregðast við því ástandi. Svarið var: Ekki neitt. — Ég óska eftir því að fara aftur á mælendaskrá.