153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:06]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að taka undir nefndarálit 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar, hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Frumvarp hæstv. dómsmálaráðherra til laga, um breytingu á lögum um útlendinga, er nú til umræðu í fimmta sinn. Frumvarpið hefur ítrekað verið lagt fram án þess að það hafi náð fram að ganga en nú skal það hafast, segja stjórnarþingmennirnir — núna þegar flóttafólk í heiminum hefur aldrei verið fleira, fjölgaði um 10 milljónir á liðnu ári, núna þegar stríð hefur geisað í Úkraínu í 11 mánuði og núna þegar neyð fólks vegna loftslagsbreytinga er í uppsiglingu. Á þessum tímapunkti telja hv. þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að kominn sé rétti tíminn til að láta undan og samþykkja skerðingu á réttindum fólks á flótta. Nú sé kominn tími til að leggjast flöt og samþykkja mál sem mun leiða til þess að þvingaðar endursendingar á börnum til Grikklands raungerast, mál sem mun leiða til þess að fólk sem ekki getur snúið aftur til heimaríkis síns verður svipt grundvallarréttindum á borð við húsnæði, heilbrigðisþjónustu og lágmarksframfærslu. Já, þau segja það einmitt að núna sé rétti tíminn til að setja fólk í neyð á götuna, ekki bara í Grikklandi heldur líka hér á Íslandi. Flóttafólk á götum bæjarins er samkvæmt þessu hluti af framtíðarsýn Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, allt í nafni skilvirkni sem enginn skilur reyndar í hverju er fólgin.

Hvernig er það skilvirkni að svipta fólk grundvallarréttindum á borð við heilbrigðisþjónustu og húsnæði? Geta hv. þingmenn stjórnarflokkanna svarað þessari spurningu: Í hverju felst skilvirknin sem á að ná fram með frumvarpinu? Eitt af því sem lagt er til er að fólk sem synjað hefur verið um vernd verði svipt allri þjónustu 30 dögum eftir lokasynjun. Þjónustan heyrir undir hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmund Inga Guðbrandsson, varaformann Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sem að mestu hefur farið huldu höfði í umræðu um málið.

Við stjórnarmyndun núverandi ríkisstjórnar var tekin sú ákvörðun að flytja ábyrgð á þjónustu við fólk á flótta yfir til félags- og vinnumarkaðsráðherra, ráðherra Vinstri grænna. Við bundum við það töluverðar vonir. Allt átti það að vera til bóta fyrir fólk á flótta. Markmiðið var að bæta þjónustuna. En hvað gerðist? Róið er að því öllum árum að koma í gegn breytingum á lögum um útlendinga sem fela í sér kaflaskil til hins verra í meðferð íslenskra stjórnvalda á fólki á flótta. Í nafni skilvirkni á að vísa fólki á götuna, svipta það réttindum til grunnheilbrigðisþjónustu og þeim rúmlega 10.000 kr. sem það fær á viku til framfærslu.

Rauði krossinn á Íslandi gaf nýverið út skýrslu um aðstæður fólks sem fengið hefur synjun á umsókn sinni um vernd en ekki er mögulegt að senda til heimaríkis. Hópurinn er fámennur, innan við 70 einstaklingar, en fólkið sem skýrslan fjallar um hefur verið hér allt frá árinu 2017 en kemst ekki heim, m.a. vegna þess að það getur ekki útvegað sér vegabréf. Nær útilokað er fyrir flest þeirra sem tilheyra þessum fámenna hópi að fá atvinnuleyfi þar sem íslensk stjórnvöld gera kröfu um að fólk leggi fram gilt vegabréf áður en bráðabirgðaatvinnuleyfi er gefið út. Þarna vantar augljóslega umrædda skilvirkni eða bara skynsemi, frú forseti. Fólki sem hvorki kemst lönd né strönd árum saman, vegna þess að það getur ekki útvegað sér vegabréf, er bannað að vinna á Íslandi af því að það getur ekki framvísað vegabréfi. Er tekið á þessu í skilvirknisfrumvarpinu sem við ræðum hér? Samkvæmt frumvarpinu á að vísa þessu fólki úr þjónustu, svipta það réttindum til heilbrigðisþjónustu og taka af því þessar 10.000 kr. sem það fær á viku til að draga fram lífið. Væri nú ekki ráð að fara aðrar skilvirkari og mannúðlegri leiðir, t.d. að veita fólki bráðabirgða atvinnu- og dvalarleyfi, spara þar með íslenska ríkinu útgjöld og leyfa fólkinu að lifa lífinu með reisn?

Frú forseti. Núna skal það hafast að koma margþvældu og ómögulegu máli í gegnum þingið þrátt fyrir að allar þær fjölmörgu umsagnir sem borist hafa um málið, að undanskilinni umsögn dómsmálaráðuneytisins sjálfs, séu mjög neikvæðar. Umsagnir hafa m.a. borist frá stofnunum og félagasamtökum á borð við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, UNICEF, Barnaheillum, Læknafélagi Íslands og Rauða krossinum á Íslandi sem öll hafa yfirburðaþekkingu á málefnum flóttafólks. Í umsögnum þeirra er varað við afleiðingum frumvarpsins, ekki bara afleiðingum þess á líf og öryggi flóttafólks heldur koma líka fram fyrirvarar þess efnis að ólíklegt sé að frumvarpið muni ná markmiðum sínum um að auka skilvirkni. Varað er við því að ákvæðið gangi gegn stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu. Flóttamannastofnun fjallar um að ákvæði frumvarpsins, um svokallað fyrsta griðland eða öruggt þriðja ríki, sé í andstöðu við tilmæli stofnunarinnar.

Frú forseti. Í ljósi skilvirkni er full ástæða til að staldra við ákvæði í b-lið 8. gr. frumvarpsins um fyrsta griðland eða svokallað öruggt þriðja ríki. Ég er ekki viss um að þingheimur sé fullkomlega áttaður varðandi þýðingu þessa ákvæðis. Ég varð a.m.k. gáttuð þegar ég áttaði mig á hugsuninni, eða vanhugsuninni, skulum við segja, að baki ákvæðinu. Ég vona a.m.k. að athugunarleysi sé ástæða þess að ákvæðið er enn inni í frumvarpinu því að ef ákvæðið er skoðað þá er augljóst að það gengur ekki upp. Í stuttu máli gengur reglan um öruggt þriðja ríki út á að veita íslenskum stjórnvöldum heimild til að synja fólki á flótta um efnislega meðferð umsóknar sinnar og vísa því til ríkis sem eðlilegt og sanngjarnt geti talist að það dvelji í. Ekki er gerð krafa um að fólk hafi áður dvalið í hinu örugga þriðja ríki. Ekki er gerð krafa um að fólk hafi heimild til að fara og/eða dvelja í ríkinu. Það stendur sem sagt til að samþykkja lög á Alþingi Íslendinga sem fela í sér brottvísanir á fólki til ríkja sem hafa engar skyldur til að taka við fólkinu, ríkja sem fólk hefur hvorki heimild til að fara til né heimild til að dvelja í.

Það er alveg ljóst að þessar tillögur eru vanhugsaðar og óframkvæmanlegar. Á þetta hafa Rauði krossinn og Flóttamannastofnun bent. Á þetta hafa fulltrúar minni hlutans ítrekað bent í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. En hvers vegna hlusta hv. stjórnarþingmenn ekki á þessi varnaðarorð? Af hverju er engin efnisleg umræða hér í þessum þingsal um þetta? Af hverju koma þingmenn stjórnarflokkanna ekki hingað upp og útskýra fyrir okkur hvernig þetta á að ganga upp, í hverju skilvirknin á að vera fólgin? Það er ekki nóg að koma hér upp og endurtaka frasa um skilvirkni þegar margsinnis er búið að hrekja það í umsögnum og hér í þingsal að skilvirknin muni aukast með frumvarpinu.

Að lokum, forseti, vil ég segja að það veldur mér vonbrigðum þegar stjórnarliðar reyna að afvegaleiða umræðuna með því að tala um alla innflytjendur og þá sem leita hér eftir alþjóðlegri vernd í sama orðinu. Það er mikilvægt að blanda ekki saman í umræðunni móttöku þeirra sem hingað leita eftir alþjóðlegri vernd, líkt og frumvarpið sem við ræðum hér er um, og hinna sem hingað koma eftir að auglýst hefur verið eftir þeirra starfskröftum. Í umræðum um hælisleitendur og móttöku þeirra á dögunum, í Silfrinu á RÚV, velti stjórnarþingmaður upp þeirri spurningu hvort raunveruleikinn á Suðurnesjum, þar sem 30% íbúanna væru af erlendum uppruna, væri sá raunveruleiki sem við vildum í öll sveitarfélög. Skilja mátti á hv. þingmanni að íbúar af erlendum uppruna sköpuðu þar mikil vandamál og því þyrftum við að takmarka móttöku flóttamanna og forða öðrum sveitarfélögum frá slíkum örlögum. Íslenskt samfélag er að stórum hluta borið uppi af erlendum ríkisborgurum eða Íslendingum af erlendum uppruna. Samfélagið á Suðurnesjum væri ekki jafn gott og það er ef við nytum ekki krafta þeirra fjölmörgu og harðduglegu erlendu íbúa sem þar búa og starfa. Og stóra atvinnugreinin, ferðaþjónustan, þyrfti að gefa eftir um allt land því að ekki væri hægt að flytja farþega til og frá landinu ef starfskrafta þessa fólks nyti ekki við. Jafnframt þyrfti að draga úr byggingarframkvæmdum og fækka störfum í fiskvinnslu ef fólkið hefði ekki svarað kalli og komið hingað til starfa. 20% íbúa í Reykjavík eru með erlent ríkisfang og meira en helmingur íbúa Mýrdalshrepps, svo að dæmi séu tekin. Er það skoðun fleiri hv. þingmanna stjórnarflokkanna að þar sem fólk af erlendum uppruna starfi hér á landi og haldi uppi hagvexti og hagsæld getum við ekki tekið á móti fólki á flótta, það sé of flókið? Vitanlega þarf fólk af erlendum uppruna að fá tækifæri og stuðning við að aðlagast íslensku samfélagi en það er við ríkisstjórnina að sakast að fjármagna ekki heilbrigðis-, mennta- og velferðarkerfið með þeim hætti að þau geti þjónað öllum íbúum landsins.

Samfylkingin hefur allt frá stofnun flokksins talað fyrir opnu samfélagi. Við munum halda því áfram. Það þýðir ekki að við lokum augunum fyrir því að ört stækkandi þjóð kallar á aukna innviðauppbyggingu. Við þurfum nauðsynlega að efla bráðaþjónustuna, skólakerfið og leggja áherslu á að skapa hér samfélag jöfnuðar þar sem öll sem hér lifa og starfa fái raunveruleg tækifæri til að styrkja stöðu sína og lifa mannsæmandi lífi.

Virðulegur forseti. Ég leyfi mér enn að trúa því að flestir hv. þingmenn geti ekki samþykkt þetta frumvarp vegna þess að það skerðir ekki bara réttindi eins viðkvæmasta hóps samfélagsins og vísar á götuna heldur nær það engan veginn þeim markmiðum sem hæstv. dómsmálaráðherra hefur lagt alla áherslu á að þurfi að ná.