útlendingar.
Frú forseti. Mér finnst mikilvægt að við tökum á móti fólki sem fellur undir skilgreininguna um fólk á flótta, að við stöndum við alþjóðlegar skuldbindingar. Líkt og fram hefur komið í mörgum umsögnum þá er þetta frumvarp ekki að ná því. Og í umsögnunum, þar sem að baki eru stofnanir og félagasamtök sem hafa góða þekkingu á málinu og mun meiri og betri þekkingu en sú sem hér stendur, er einmitt bent á það að þetta markmið um skilvirkni muni ekki nást. Að frumvarpið, verði það samþykkt í óbreyttri mynd, muni enn frekar verða til þess að flækjustigin verði fleiri, fyrir nú utan skortinn á mannúð sem hv. þingmaður nefnir hér. Þetta er ansi kalt, það eru kaldar tillögurnar í 6. gr., 8. gr. og að hluta til í 17. gr. sem hv. þm. Samfylkingarinnar, Helga Vala Helgadóttir, leggur einmitt til í sínu nefndaráliti að falli brott, það myndi aðeins bæta málið. En jafnvel þótt það gerist þá er frumvarpið slæmt og betra væri fyrir íslenskt samfélag að leiða saman þverpólitíska nefnd, leiða saman fólk sem er að takast á um þessi málefni og finna málefnum útlendinga góða lausn, því að við horfum á heiminn eins og hann er og við vitum að þessi mál verða stærri og viðfangsmeiri í öllum heiminum, líka hér á landi, á næstu árum.