153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:26]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Jú, ég tek undir og ég geri ráð fyrir því að það hefði leitt til betri niðurstöðu ef það hefði verið tekið mark á fleiri athugasemdum og að flokkarnir hefðu þverpólitískt fengið að koma að samningu frumvarpsins. Ég hef nú setið hér á forsetastóli undanfarna daga og hlustað á hv. þingmenn Pírata lesa upp úr umsögnum, sem hefur verið mjög fróðlegt, og ég undrast það að hv. þingmenn meiri hlutans hafi ekki tekið meiri þátt í umræðunni um þetta mikilvæga frumvarp. Ég sakna þess að þau skuli ekki koma og sannfæra okkur um hvað þetta er mikið þjóðþrifamál af því að við sjáum það ekki. Við þurfum leiðsögn frá hv. stjórnarþingmönnum í þessum efnum.