153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:27]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek sérstaklega undir lokaorð hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur og þakka henni kærlega fyrir ræðuna. Nú komu margar umsagnir um þetta frumvarp og allar nema — ég held að það séu tvær sem eru hlutlausar gagnvart því því að þær telja það ekki á sínu verksviði að hafa efnislega skoðun á því. Það er annars vegar í tengslum við lokaákvæðið í frumvarpinu, sem er samhljóða frumvarpi sem sú er hér stendur hefur lagt fram eitt og sér varðandi atvinnuleyfi, um fólk sem hefur fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Það var Alþýðusamband Íslands sem taldi sig ekki umkomið þess að gera athugasemdir við önnur ákvæði frumvarpsins. Þetta eru svona jákvæðustu umsagnirnar um frumvarpið. Restin — ekki svo mikið. Ein umsögn hefur þó staðið sérstaklega í mér. Það er umsögn Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands, sem er nú mjög fagleg og hlutlaus stofnun. Hún benti á að ekki hefði farið fram mat á samræmi frumvarpsins við stjórnarskrá. Í umsögn sinni nefnir stofnunin hæstaréttardóm sem féll bara núna í haust þar sem Alþingi er hirt fyrir að sinna ekki því sem Hæstiréttur kallaði stjórnskipulega skyldu Alþingis til að ganga úr skugga um að ekki sé verið að samþykkja hérna lög sem stangast á við stjórnarskrá. Nú er ég ný á þessu þingi og stundum hissa á hlutum sem mér skilst að séu allvanalegir. Mig langar til að freista þess að spyrja hv. þingmann sem hefur meiri þingreynslu en ég: Hver í ósköpunum getur verið ástæða þess að þingmenn þverneiti að láta ganga úr skugga um það að frumvarp sem við erum að láta fara hérna í gegnum þingið standist stjórnarskrá?