útlendingar.
Frú forseti. Nú sit ég ekki í hv. allsherjar- og menntamálanefnd en það gerir hv. þingmaður hins vegar. Þessi umræða hlýtur að hafa farið fram í hv. allsherjar- og menntamálanefnd, ég trúi ekki öðru, og þá hafa væntanlega stjórnarþingmenn sagt hvers vegna þeir eru sannfærðir um það, jafnvel þó að slík stofnun sem hv. þingmaður nefndi hér, Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, hafi talað um að ekki hafi verið lagt mat á það, að frumvarpið stæðist stjórnarskrá. Ég gæti spurt á móti: Voru hv. stjórnarþingmenn ekki með rök á reiðum höndum til að sannfæra stjórnarandstöðuþingmenn um að þetta væri ónauðsynlegt vegna þess að þeir vissu það og settu fram rök fyrir því að frumvarpið stæðist stjórnarskrá? Það skiptir engu máli hver þingreynslan er í þessum efnum en auðvitað er það okkar skylda að fara ekki af stað og samþykkja frumvörp sem ekki standast stjórnarskrá. Við höfum meira að segja skrifað undir eið um það, þannig að ég veit ekki hver eru rökin eru, frú forseti, en það væri fínt að fá þau fram í umræðu hér í þingsal.